Útdeila sandi og salti til borgarbúa í hálku 10. janúar 2012 05:30 Salt fyrir Borgarbúa Jón Eiríksson hjá hverfisstöðinni á Klambratúni sér til þess að borgarbúar fái salt og sand í pokum til að taka með sér og hálkuverja heimreiðar og lóðir. Fréttablaðið/Anton
Hálkan og ófærðin tekur á taugar íbúa höfuðborgarsvæðisins og sveitarfélögin fá á sig skæðadrífu gagnrýni. Borgarstjóri segir ekkert til sparað. Í Reykjavík fær fólk sand og salt á hverfastöðvum. Salta á allar götur í Kópavogi í vikunni. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru margir orðnir langþreyttir á ófærð og hálku og gagnrýna yfirvöld fyrir að standa slælega að hreinsun gatna og gangstíga. „Ég get fullvissað borgarbúa um að við erum að gera okkar besta til að greiða úr ástandinu og það er ekki verið að spara neitt í þeim efnum,“ segir í yfirlýsingu sem Jón Gnarr borgarstjóri sendi frá sér í gær. Þeir sem vilja taka til hendinni á eigin lóðum og innkeyrslum geta sótt bæði sand og salt í pokum á fimm hverfisstöðvum Reykjavíkur. Í stöðinni á Miklatúni fengust þær upplýsingar að talsvert væri um að borgarbúar nýttu sér þessa þjónustu. Þar var einn starfsmaður sem mokaði salt og sandi í poka fyrir þá sem vildu. Í Hafnarfirði geta íbúar fengið sand í þjónustumiðstöð í Norðurhellu. Þar hefur verið unnið að því að hálkuverja götur og stíga og hefla klaka þar sem ástandið er verst. Þessari vinnu er haldið áfram. Jón benti á að gatnakerfið í Reykjavík sé 950 kílómetrar að lengd. Sagði hann öllum hugsanlegum ráðum beitt til að hálkuverja og ryðja götur í borginni. „Við þessar aðstæður vil ég biðja fólk að sýna ástandinu skilning, fara varlega og hætta sér ekki út nema vel búið. Þá vil ég biðja bíleigendur að hliðra til fyrir snjóruðningstækjum og sýna tillitssemi í umferðinni,“ sagði borgarstjóri. Unnið var frá klukkan fjögur í fyrrinótt við snjóhreinsun og hálkuvarnir í samræmi við forgangsröðun að því er sagði í tilkynningu frá borginni. Notaðir voru ellefu vegheflar til að ná niður klakahryggjum í Bústaðahverfi, Heimum, Vogum, Sundum, Seláshverfi, Breiðholti, Vesturbænum, Smáíbúðahverfi og Háaleiti. Þá voru göngustígar hreinsaðir og sandur borinn í þá og í aðkomuleiðir að biðstöðvum strætó. Í Kópavogi var unnið að því í gær að salta götur bæjarins og stefnt að því að sem flestar götur verði saltaðar í vikunni að því er sagði í tilkynningu frá Örnu Schram, upplýsingafulltrúa bæjarins. „Áfram verður unnið við snjóhreinsun í Kópavogi en notast hefur verið við hátt í tuttugu snjóruðningstæki af ýmsum stærðum og gerðum,“ sagði í tilkynningunni.gar@frettabladid.is
Mest lesið Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Fleiri fréttir Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Sjá meira