Innlent

ÍTR skoðar opnun Skálafells

KR-ingar bjóðast til þess að starfa í sjálfboðavinnu á skíðasvæðinu um helgar.fréttablaðið/vilhelm
KR-ingar bjóðast til þess að starfa í sjálfboðavinnu á skíðasvæðinu um helgar.fréttablaðið/vilhelm
Skíðadeild KR hefur boðist til þess að starfa í sjálfboðavinnu í Skálafelli um helgar til þess að auðvelda opnun svæðisins, að því er Anna Laufey Sigurðardóttir, formaður deildarinnar, greinir frá. KR er með skíðaskála í Skálafelli og hefur ekki getað nýtt hann þar sem svæðið hefur verið lokað. Að sögn Önnu Laufeyjar er nýr mótor í stólalyftunni sem er 1.200 m löng.

Eva Einarsdóttir, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, segir boð skíðadeildar KR verða skoðað með opnum huga.

„Það er samt ljóst að ekki var gert ráð fyrir því í fjárlögum að svæðið yrði opnað í vetur,“ segir Eva.

Skálafell var lokað í allan fyrravetur og á heimasíðu skíðasvæðanna segir í tilkynningu að svæðið verði ekki opnað í vetur. Þó er tekið fram að ekki sé um varanlega lokun að ræða.

Anna Laufey bendir á að veðurfar sé oft annað í Skálafelli en í Bláfjöllum. Þar sé þess vegna stundum hægt að hafa opið þegar lokað er í Bláfjöllum vegna veðurs.

„Auk þess má benda á að iðkendur skíðaíþróttarinnar borga fyrir aðgang að svæðinu. Þeir borga jafnframt fyrir rekstur þess með skattgreiðslum. Við vonum að boð okkar um sjálfboðavinnu verði til þess að hægt verði að opna svæðið á ný. Öll sveitarfélögin sem standa að þessu með Reykjavík vilja að Skálafell verði opnað.“ - ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×