Samstarf við Svía um iðnframleiðslu úr áli 6. janúar 2012 07:00 Menn vilja skoða betur möguleikana til að framleiða úr þeim hráefnum sem eru á Íslandi, segir framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Fréttablaðið/Valli „
Það er í bígerð samstarf um þróunar- og nýsköpunarverkefni milli íslenskra hönnuða, sænskra álframleiðenda og áliðnarins hér heima,“ segir Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Að verkefninu koma Hönnunarmiðstöð Íslands annars vegar og hins vegar samtök glerframleiðenda, húsgagnaframleiðenda og fyrirtækja sem framleiða vörur úr áli í Suður-Svíþjóð. Sænska sendiráðið á Íslandi átti visst frumkvæði að málinu og Samtök iðnaðarins og Samtök álframleiðenda hérlendis eiga að því aðild. Samstarfsverkefnið var rætt á húsgagnaráðstefnunni Möbelriksdagen í Smálöndunum í Svíþjóð á miðvikudaginn. Halla Helgadóttir ítrekar hins vegar að verkefnið sé á upphafsstigi. Til dæmis sé fjármögnunin enn ekki að fullu tryggð þótt vonast sé til að sá þáttur skýrist fljótlega. Að sögn Höllu á málið rætur í samstarfi íslenskra hönnuða og húsgagnaframleiðenda í Suður-Svíþjóð. „Hugmyndin þróaðist frá húsgögnum yfir í ál því það þótti áhugaverðara,“ útskýrir hún. Halla minnir á að á Íslandi séu margir hönnuðir og mikil álframleiðsla en þó engin vöruframleiðsla úr áli. Í Svíþjóð séu hins vegar mörg fyrirtæki sem framleiði úr áli. Upplagt sé að leiða þessa aðila saman. „Menn vilja rannsaka betur möguleikana á að vinna úr þeim hráefnum sem hér eru og framleiðsla úr áli er áhugaverð út frá því,“ segir Halla sem kveður tímann munu leiða í ljós hvaða hlutir gætu verið settir í framleiðslu. Það ráðist af þeirri þróun sem verði meðal hönnuðanna sem taka þátt. „Við sjáum ekki fyrir að á stuttum tíma verðum við með úrvinnslufyrirtæki í áliðnaði hér heima en það er samt sú mynd sem við horfum til,“ svarar Halla spurð hvort stefnt sé að því að álvöruframleiðsla verði hér á landi. Að sögn Höllu hefur verið sótt um styrk til nýsköpunarsjóðsins Nordisk Innovation Fund. „Ef við náum öllum þráðum saman verður þetta stórt og mjög spennandi verkefni,“ segir Halla en setur þó fyrirvara við allt málið. „Það er aldrei gott að blása í lúðurinn áður en búið er að skrifað undir samningana.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira