Hlunnindi höfð af bændum 4. janúar 2012 06:00 Árið 2011 varð algert hrun í varpi við Suður- og Vesturland meðan viðunandi varp var við Norðurland. fréttablaðið/stefán „
Lagabreytingin, sem að líkum verður aldrei dregin til baka, mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir landeigendur sem nýta hlunnindarétt sinn í dag. Réttindi verða með þessu færð frá landeigendum til ráðherra. Hlunnindanýting verður líklega háð undanþágu, öfugt við það sem er í dag,“ segir Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir, atvinnu- og nýsköpunarráðgjafi Bændasamtaka Íslands (BÍ). Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirbúi frumvarp til lagabreytinga svo ráðherra sé heimilt að setja ákvæði um stjórnun hlunnindanýtingar landeigenda. Tilefnið er tillaga starfshóps um friðun fimm sjófuglastofna af svartfuglaætt, en friðun er ómöguleg án breytingar á 20. grein laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Greinin fjallar um hlunnindarétt og sölu afurða. Starfshópur umhverfisráðherra um verndun og endurreisn svartfuglastofna var kallaður saman vegna rannsókna sem sýna alvarlega stöðu sjófugla af stofni svartfugla; lunda, álku, langvíu, stuttnefju og teistu. Naumur meirihluti starfshópsins leggur til að fimm stofnar sjófugla af svartfuglaætt verði friðaðir næstu fimm árin. Forsenda tillögunnar eru vísbendingar um að veiðar séu ósjálfbærar miðað við núverandi stöðu stofnanna sem hefur hrakað á undanförnumárum. Bændasamtökin segja lagabreytinguna ótæka og Guðbjörg Helga, sem var fulltrúi BÍ, sagði sig úr starfshópnum að ósk stjórnar BÍ þegar tillögurnar lágu fyrir. „Það er ekkert sem bendir til þess að hefðbundin nýting hafi stefnt umræddum stofnum í hættu, fæðubrestur er talinn aðalorsökin,“ segir Guðbjörg Helga og bætir við að rannsóknir séu af skornum skammti og rök friðunar því veik. BÍ telja sig geta stutt takmarkað veiðibann á vissum tegundum, sé slíkt talið nauðsynlegt, en ekki í formi lagabreytinga. Gera ætti samning við landeigendur og rétthafa hlunninda um bann tímabundið eða styttingu veiðitímabils. Starfshópurinn var skipaður fulltrúum umhverfisráðuneytisins, Náttúrufræðistofnunar, Umhverfisstofnunar, BÍ, Skotveiðifélags Íslands og Fuglaverndar. Skotveiðifélagið og Umhverfisstofnun skiluðu séráliti um takmörkun á veiði álku, langvíu og stuttnefju næstu fimm árin í stað algjörrar friðunar. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira