Stefnt er að mokstri á stéttum í vikulokin 3. janúar 2012 04:00 Allt gangstígakerfi Reykjavíkurborgar er um 950 kílómetrar að lengd. fréttablaðið/pjetur
Yfir þúsund fyrirspurnir bárust frá íbúum Reykjavíkurborgar fyrir áramótin í gegnum ábendingagáttina á Reykjavík.is vegna mikils snjós á gangstígum víðs vegar um borgina. Til stendur að hefja mokstur á fimmtudag eða föstudag, að sögn Bjarna Brynjólfssonar, upplýsingastjóra Reykjavíkur. „Þeir eru að glíma við þetta,“ segir Bjarni. „Frostið hefur tafið mikið fyrir.“ Bjarni útskýrir að gangstígum, stéttum og göngum sé skipt í þrjá þjónustuflokka; mikilvægustu göng og hjólastígar eru í flokki eitt, stéttir við stærri götur eru í flokki tvö og húsagötur í flokki þrjú. Nú er verið að hreinsa flokka eitt og tvö. „Húsagöturnar eru vandamál þar sem þær eru stærsta fermetratalið. Búist við því að vinna hefjist við þær á fimmtudag eða föstudag,“ segir hann. Tíu vélar vinna að mokstri. Bjarni segir að ef ljúka ætti verkinu á einum eða tveimur sólarhringum þyrfti um 60 vélar til vinnunnar. „Gangstígakerfið er í kringum 950 kílómetrar allt í allt,“ segir hann. „Og það er bara það sem er á okkar færi, svo það er ekkert skrýtið að þetta taki tíma.“ Veðurstofa Íslands spáir áframhaldandi frosti fram á föstudag. Þá er búist við töluverðri rigningu með hlýnandi veðri. - sv
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira