Lítið var laust á hótelum yfir hátíðarnar 2. janúar 2012 11:15 Þetta glaðlega par var á gangi í miðborg Reykjavíkur á fimmtudag og naut vetrarveðursins á þessari síðustu viku ársins. fréttablaðið/gva
Áætlað er að ríflega 4.000 ferðamenn hafi heimsótt Reykjavík nú um áramótin. Í fyrra er talið að um 3.500 ferðamenn hafi sótt borgina heim, að mati Höfuðborgarstofu. Stærstu hótel landsins voru annaðhvort fullbókuð eða með örfá herbergi laus og sammælast forsvarsmenn þeirra um að erlendum ferðamönnum hafi fjölgað miðað við sama tíma í fyrra. Algengasti dvalartíminn er þrír til fjórir dagar og voru flestir að tínast inn á hótelin í fyrradag og í gær. Jóhann Sigurólason, móttökustjóri á Grand Hótel, segir bókanir ganga vonum framar, enda allt uppbókað á hótelinu yfir áramót. „Viðskiptin ganga mjög vel hjá okkur eins og víðast hvar. Hér er allt fullt," segir Jóhann. „Þetta eru mestmegnis útlendingar, ætli rúmlega helmingurinn sé ekki Bretar og Þjóðverjar." Jóhann finnur töluverða aukningu í ferðamannastraumi frá því í fyrra. Valgerður Ósk Ómarsdóttir hjá Hótel Sögu tekur í sama streng og segir hótelin í landinu virðast vera vinsælli ár frá ári. Fréttablaðið hafði einnig samband við forsvarsmenn Hilton og Icelandair hótela og Hótel Borg, og fékk þau svör að lítið sem ekkert væri laust hjá þeim. Þar er tekið undir orð Jóhanns og Valgerðar varðandi aukninguna milli ára og flestir gestirnir séu erlendir. Í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu segir að ferðavefsvæði CNN hafi sett Reykjavík tvisvar í röð á lista yfir mest spennandi jólaborgir í heimi. - sv
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira