Innlent

Lögregla aðstoðaði illa haldinn mann í miðbænum

Það borgar sig að búa sig vel í þeirri tíð sem nú er.
Það borgar sig að búa sig vel í þeirri tíð sem nú er.
Færðin, eða ófærðin öllu heldur, í höfuðborginni síðustu daga hefur ekki farið framhjá neinum. Lögreglan greinir frá því að í gær hafi hún þurft að aðstoða mann sem var hríðskjálfandi og illa búinn á götum borgarinnar.

Umhyggjusamur borgari hafði samband við lögreglu og tilkynnti um manninn sem var illa á sig kominn í miðborginni. Að sögn lögreglu var maðurinn alls ekki búinn til útivistar og var hann til að mynda í inniskóm. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×