Ísfirðingar gætu þurft að borga 120 þúsund meira í leikskólagjöld Hugrún Halldórsdóttir skrifar 11. janúar 2012 19:00
Ísfirskir foreldrar með eitt barn geta þurft að greiða tæplega hundrað og tuttuguþúsund krónum meira í leikskólagjöld á ári en þeir sem búa í höfuðborginni samkvæmt núgildandi verðskrám. Í nýrri könnun ASÍ kemur í ljós að aðeins tvö sveitarfélög af þeim fimmtán stærstu á landinu hafa ekki hækkað verðskrá leikskóla sinna frá 1. janúar í fyrra, en það eru Seltjarnarneskaupstaður og Ísafjarðarbær. Þegar litið er á gjaldskrá fyrir átta tíma dvöl með fæði var hækkunin mest hjá Reykjanesbæ, 16%. Þar á eftir kemur Hafnarfjörður með 15% hækkun og svo Reykjavík sem hækkaði gjaldskrá sína um 13%. Þrátt fyrir að Ísafjarðarbær hafi ekki hækkað gjaldskrá sína á tímabilinu er þjónustan þar dýrust, en að hafa barn í átta tíma vistun með fæði kostar rúmlega 34 þúsund krónur á mánuði. Lægsta gjaldið þurfa foreldrar reykvískra barna að greiða en sama þjónusta kostar þar á mánuði 24.500 krónur. Verðmunurinn er því um 40% Lítum nú á kostnað foreldra leikskólabarna fyrir þjónustuna í sveitarfélögunum tveimur á ársgrundvelli. Reykvískir foreldrar greiða 294 þúsund krónur fyrir barn á ári, en ísfirskir 412 þúsund, og er munurinn því 118 þúsund krónur. Til að bæta gráu ofan á svart þá er systkinaafslátturinn svokallaði hærri hjá Reykjavíkurborg. Afslátturinn fyrir ísfirska foreldra er 30% af dvalargjaldi fyrir annað barn, en reykvískir foreldrar fá hins vegar 75% afslátt. Bæði sveitarfélögin bjóða svo 100% afslátt af dvalargjaldi fyrir þriðja barn.
Mest lesið Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum Innlent Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Erlent „Það fer enginn lífvörður út í“ Innlent Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Innlent Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Innlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Innlent Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Erlent Fleiri fréttir Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tveir skjálftar um 3,3 að stærð Fundur hafinn í utanríkismálanefnd Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Sjá meira