Jens Kjartansson farinn í leyfi Erla Hlynsdóttir skrifar 11. janúar 2012 18:18
Jens Kjartansson er farinn í leyfi frá störfum sem yfirlæknir lýtalækningadeildar Landspítalans. Ákvörðunin er tekin að hans frumkvæði. Jens segir að landlæknir hafi vorið 2010 talið óheppilegt að hann upplýsti konur með PIP-púða um mögulega skaðsemi þeirra. Jens tilkynnti ákvörðun sína á fundi með forstöðumönnum Landspítalans nú síðdegis. Þar kom fram að Jens óskaði sjálfur eftir að fara í leyfi vegna veikinda sem hefðu ágerst að undanförnu vegna þess álags sem hann hefur verið undir. Sem kunnugt er flutti Jens inn PIP-sílíkonpúðana umdeildu og setti í yfir fjögurhundruð konur. Í fréttum okkar í gær kom fram að landlæknisembættið hafði vitneskju um mögulega skaðsemi púðanna strax vorið 2010. Geir Gunnlaugsson, landlæknir, sagði þá að konur með púðana hefðu ekki verið látnar vita þar sem ekki hafi verið staðfest að púðarnir væru hættulegir. Í samtali við Pressuna í dag segir Jens að hann hafi að eigin frumkvæði haft samband við landlæknisembættið á þessum tíma til að upplýsa að hann notaði þessa púða og að hann hefði velt fyrir sér að skrifa öllum konunum bréf. Landlækni hafi hins vegar þótt það óheppilegt, og því var ekkert af því. Fréttastofa hafði samband við Geir í dag sem segir að á þessum tíma hafi staðgengill hans, Kristján Oddsson, verið við störf. Geir segist vita af því að Jens hafi rætt við starfsfólk embættisins en hann viti ekki nákvæmlega hvað þeim fór á milli. Fréttastofa reyndi án árangurs að ná tali af Kristjáni fyrir fréttir.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira