Innlent

Eldur kom upp í spennistöð Landsnets í Hvalfirði

Eldur kom upp í spennistöðinni Brennimelur í Hvalfirði í gærkvöldi og var slökkvilið kallað á staðinn. Vegna eldsins og gríðarlegrar seltu var ekki mögulegt að spennusetja allt tengivirkið fyrr en ráðstafanir höfðu verið gerðar vegna eldsins og seltunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Þar segir að starfsmenn Landsnets, með aðstoð slökkviliðs og fleiri, hafa unnið að hreinsun á búnaði í stöðinni í alla nótt. Hreinsuninni lauk að mestu á sjöunda tímanum í morgun og er reksturinn þar kominn í eðlilegt horf og allir notendur komnir með rafmagn.

Í gærkvöldi og nótt gekk yfir landið mikið óveður sem hafði víðtæk áhrif á flutningskerfið. Rafmagnstruflanir urðu víða um land vegna hvassviðrisins og gríðarlegrar seltu einkum á suður og vesturhluta landsins. Um tíma var spennistöðin Brennimelur í Hvalfirði spennulaus og notendur á svæðinu úti. Um var að ræða umfangsmikla aðgerð og voru um 40 manns sem þátt tóku í hreinsunarstarfinu og bráðaviðgerðum.

Straumleysi hjá Norðuráli varði í rúmar þrjár klukkustundir þegar rafmagn komst á hluta af stöðinni en rafmagn til Járnblendifélagsins komst ekki á fyrr en kl. 7. Ljóst er að talsverðar skemmdir hafa orðið á spennistöðinni sem eftir á að meta.

Við truflanirnar í flutningskerfinu urðu skammhlaup vegna seltunnar sem ollu miklu spennuflökti víða í kerfinu. Notendur um allt land urðu varið við þetta. Ljósbogar sem fylgdu sáust víða m.a. á höfuðborgarsvæðinu

Útleysingar urðu víðar í kerfinu einkum á sunnan- og vestanverðu landinu þar sem 132 kV og 66 kV flutningslínur leystu út vegna veðurs. Hluti notenda á þessu svæði urðu straumlausir um tíma og skammta þurfti rafmagn á Snæfellsnesi. Jafnframt urðu útleysingar í virkjunum á Suðvesturlandi.

Flestar flutningslínur eru nú komnar í rekstur og allir notendur komnir með rafmagn. Unnið er að því að koma þeim flutningslínum sem enn eru úti í resktur til að auka öryggið. Vonast er til þess að ekki komi til frekari truflana. Veruleg selta er enn á kerfinu og fylgist Landsnet náið með þróun mála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×