Blindhorn og aðrar slysagildrur á stígum 13. júní 2012 10:30 Þessi göngustígur er við leikskólann Steinahlíð við Suðurlandsbraut. Beygjan er kröpp og ekki sést fyrir hornið. fréttablaðið/pjetur
Víða um höfuðborgarsvæðið má finna sameiginlega göngu- og hjólastíga, sem eru yfirleitt í mikilli notkun á sumrin. Á mörgum stöðum eru blindhorn og aðrar slysagildrur. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari tók meðfylgjandi myndir. Pálmi Freyr Randversson, sérfræðingur í samgöngumálum hjá Reykjavíkurborg, segist ekki fá margar tilkynningar eða ábendingar um slys á hjóla- og göngustígum. Það vanti upp á að borginni sé tilkynnt um slíkt, en mál séu tilkynnt til lögreglu ef svo ber undir og þá skoði borgin skýrslur lögreglunnar. Frekar berist ábendingar frá fólki sem búist við því að slys gætu orðið á tilteknum stöðum og þá reyni borgin að bregðast við því áður en það gerist. Eins og sést á myndunum er gripið til ýmissa ráðstafana vegna blindhornanna, búið er að laga stígana sums staðar og á öðrum stöðum hafa verið settir upp speglar eða viðvörunarskilti. „Svo er reynt að klippa gróður ef hann er að trufla,“ segir Pálmi Freyr. „Nú er verið að hanna nýja hjólastíga. Stígarnir sem hafa verið gerðir eru blanda af göngu- og hjólastígum og þeir eru ekki hannaðir út frá hraðanum sem hjólreiðafólk er á. Sameiginlegir stígar eru meira útivistarstígar en nú er farið að hugsa þetta meira sem samgöngur og út frá hraðanum.“ Þannig séu fleiri blindhorn í gamla stígakerfinu, en vonandi verði engin í því nýja. „Á nýju stígunum eru beygjuradíusar betur útfærðir fyrir hjól og meiri hraða.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira