Innlent

Gengið frá leigusamningi

Kristján F. Axelsson, formaður Veiðifélags Þverár, og Ingólfur Ásgeirsson handsala samninginn í gær.
Kristján F. Axelsson, formaður Veiðifélags Þverár, og Ingólfur Ásgeirsson handsala samninginn í gær. mynd/starir
Leigusamningur fyrir Þverá og Kjarrá í Borgarfirði var undirritaður í gær. Samningurinn er til fimm ára eða frá næsta sumri til ársins 2017.

Leigutaki árinnar er nýtt félag, Starir ehf. í eigu þeirra Davíðs Mássonar, sem er jafnframt stjórnarformaður, Halldórs Hafsteinssonar og Ingólfs Ásgeirssonar.

Starir greiða Veiðifélagi Þverár 111,7 milljónir króna á ári.

Átta tilboð bárust í leigu ánna í nóvember, en 30 ár voru þá síðan leiga í Þverá og Kjarrá var boðin út. Veiðifélagið Sporður hafði ána á leigu en tók ekki þátt í útboðinu nú.

Næsthæsta tilboðið kom frá Lax-á ehf., og hljóðaði upp á 111,2 milljónir. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×