Innlent

Vill að Rúmenía og Búlgaría fái aðild að Schengen á árinu

Morten Bødskov, dómsmálaráðherra Danmerkur, vill hleypa Rúmeníu og Búlgaríu inn í Schengen-samstarfið sem fyrst.
Morten Bødskov, dómsmálaráðherra Danmerkur, vill hleypa Rúmeníu og Búlgaríu inn í Schengen-samstarfið sem fyrst. Mynd/Lars Svankjær
Morten Bødskov, dómsmálaráðherra Danmerkur, ætlar að beita sér fyrir að samkomulag náist á fyrri hluta ársins um að Rúmenía og Búlgaría fái aðild að Schengen-vegabréfasamstarfinu. Danmörk er nú í forsæti Evrópusambandsins.

Holland stendur eitt aðildarríkja ESB gegn Schengen-aðild Rúmeníu og Búlgaríu, eftir að Finnland lét af andstöðu sinni. Afstaða hollenzkra stjórnvalda byggist á því að löndin tvö hafi ekki náð nægilegum árangri í baráttunni við spillingu og skipulagða glæpastarfsemi og réttarkerfið sé of veikt. Þau séu því ekki í stakk búin að gæta ytri landamæra Schengen-svæðisins.

„Ég vona að lausn finnist fljótlega. Það á að meta öll ríki út frá sömu skilyrðum og ekki beita tvöföldu siðgæði, þar sem sum ríki þurfa að uppfylla strangari skilyrði en önnur,“ sagði Bødskov á fundi með blaðamönnum frá ýmsum Evrópuríkjum í Kaupmannahöfn í gær.

„Búlgaría og Rúmenía hafa lagt mikið á sig að uppfylla skilyrði Schengen-aðildar og Danir munu, á meðan þeir eru í formennsku ESB, halda áfram að reyna að finna lausn sem allir geta sætt sig við.“

Ríkisstjórn vinstriflokkanna í Danmörku hefur aðra afstöðu til Schengen-samstarfsins en hægristjórnin sem sat á undan henni og lét það verða eitt sitt fyrsta verk að aflétta á ný eftirliti á landamærunum að Svíþjóð og Þýzkalandi, sem komið var á í fyrra.

- óþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×