Innlent

Verið að bjarga fimm tonna fiskibát undir Grænuhlíð

Leki kom að fimm tonna fiskibáti, þegar hann var staddur undir Grænuhlíð við Ísafjarðardjúp á sjötta tímanum í morgun og óskuðu bátsverjarnir tveir eftir aðstoð.

Nálægur fiskibátur kom fljótt á vettvang og tók leka bátinn í tog og björgunarskipið Gunnar Friðriksson hélt frá Ísafirði með dælur og er kominn að bátnum.

Töluverður sjór var kominn í bátinn, og verður reynt að dæla úr honum og draga hann til hafnar. Annar bátsverjanna fór yfir í fiskibátinn en hinn er enn um borð í leka bátnum. Þokkalegt veður er á svæðinu. Bátarnir verða komnir til hafnar á níunda tímanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×