Innlent

Segja ekki sýnt fram á réttmæti kröfu

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhannesson
Skilanefnd Glitnis tókst ekki að sýna fram á réttmæti kröfu um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Lárusar Welding þegar krafan var lögð fram hjá sýslumanni.

Þessu héldu lögmenn Jóns Ásgeirs og Lárusar fram við málflutning um kyrrsetningarkröfuna í Hæstarétti í gær. Jón Ásgeir og Lárus áfrýjuðu dómi héraðsdóms, sem staðfesti kyrrsetningarúrskurð sýslumanns.

Einu gögnin sem lágu til grundvallar þeirri ákvörðun sýslumanns að kyrrsetja eignirnar voru fullyrðingar í kröfu skilanefndarinnar, sagði Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs. Hann sagði það ekki uppfylla skilyrði fyrir kyrrsetningu eigna.

Hróbjartur Jónatansson, lögmaður skilanefndarinnar, sagði öll skilyrði fyrir kyrrsetningu uppfyllt. Málið sé í raun skólabókardæmi um mál þar sem kyrrsetning eigi við.

Skilanefndin hefur höfðað skaðabótamál á hendur Jóni Ásgeiri og Lárusi vegna sex milljarða láns frá Glitni til félags í eigu Pálma Haraldssonar sem aldrei fékkst greitt. Krafist var kyrrsetningar á öllum eignum Jóns Ásgeirs og Lárusar hér á landi svo þeir geti ekki komið eignunum undan verði þeir dæmdir til að greiða skaðabætur. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×