"Stjórnarskráin ver okkur fyrir Þór Saari“ 12. janúar 2012 08:30 Veiðar úr hreindýrahjörð er ekki hægt að leggja að jöfnu við veiðar úr staðbundnum laxastofnum, segir formaður Landssambands veiðifélaga.
Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga, gerir alvarlegar athugasemdir við að Þór Saari, alþingismaður Hreyfingarinnar, setji „eignarrétt veiðiréttareigenda á veiðihlunnindum innan gæsalappa og tali eins og ríkisvaldið hafi það í hendi sér að gera þau upptæk“. Í Fréttablaðinu í gær sagði frá hugmynd Þórs Saari um að stangveiðileyfum í ám og vötnum verði úthlutað eins og hreindýraveiðileyfum til að jafna möguleika manna á að komast í stangveiði á skaplegu verði. Landeigendur fái greitt þótt það verði lægri upphæðir en nú er. Óðinn telur út í hött að leggja að jöfnu skipulag veiða úr hreindýrahjörð og veiðar úr staðbundum laxastofnum. „Sem betur fer ver stjórnarskrá lýðveldisins þegnana fyrir svona stjórnmálamönnum eins og Þór Saari,“ segir hann. „Það er algjörlega fráleitt að stjórnmálamenn gæli opinberlega við hugmyndir um að hægt sé að þjóðnýta veiðihlunnindi jarða eins og hendi sé veifað. Í fyrsta lagi þurfa að vera þau lagaskilyrði fyrir slíku að almannahagsmunir krefjist. Síðan þyrfti ríkissjóður að borga fyrir öll herlegheitin.“ Að mati Óðins virðist Þór ekki átta sig á að nýting veiðihlunninda skili þjóðarbúinu miklum gjaldeyri. „Mér finnst þessar hugmyndir hans vera fyrst og fremst sorglegar fyrir hann sjálfan sem þingmann og ekki til þess fallnar að auka álit á Alþingi Íslendinga.“ - gar
Mest lesið Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Innlent Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Innlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Erlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Erlent Fleiri fréttir Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Þyrlan á mesta forgangi vegna manns sem féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Sjá meira