Innlent

Flestir vilja koma aftur

Nærri helmingur erlendra ferðamanna ferðast um landið í bílaleigubíl.
Nærri helmingur erlendra ferðamanna ferðast um landið í bílaleigubíl. Fréttablaðið/Valli
Erlendir ferðamenn dvöldu að jafnaði 10,2 nætur á Íslandi sumarið 2011 og ferðuðust langflestir, eða 79,6 prósent, á eigin vegum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun sem Ferðamálastofa fékk MMR til að gera meðal erlendra ferðamanna hér á landi í fyrrasumar.

„Tveir af hverjum þremur höfðu bókað ferðina innan fjögurra mánaða fyrir brottför og við ákvarðanatökuna höfðu langflestir (75,4 prósent) aflað sér upplýsinga um Ísland á netinu," segir á vef Ferðamálastofu. Þá kemur fram að tæpur helmingur ferðamannanna, eða 46 prósent, nýtti bílaleigubíla til ferða sinna um landið.

Um leið kemur í ljós að vegakerfið er einn af þeim þáttum sem margir ferðamenn töldu að mætti bæta hér á landi.

„Ferðin stóðst væntingar flestra og töldu langflestir (79,1 prósent) líklegt að þeir myndu ferðast til Íslands aftur í framtíðinni og það að sumri til," segir í umfjöllun Ferðamálastofu.

Markmiðið með könnuninni er sagt vera að afla upplýsinga um erlenda ferðamenn, aðdragandann að ferð þeirra, ferðahegðun, eyðsluhætti og viðhorf til ýmissa þátta íslenskrar ferðaþjónustu. Um var að ræða netkönnun og netföngum safnað með skipulögðum hætti í flugstöð Leifs Eiríkssonar og við Norrænu, ferjuna á Seyðisfirði, 5. júlí til 31. ágúst 2011.

Úrtakið var 4.545 manns og svarhlutfall 51,9 prósent. - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×