Flestir vilja koma aftur 19. janúar 2012 05:30 Nærri helmingur erlendra ferðamanna ferðast um landið í bílaleigubíl. Fréttablaðið/Valli
Erlendir ferðamenn dvöldu að jafnaði 10,2 nætur á Íslandi sumarið 2011 og ferðuðust langflestir, eða 79,6 prósent, á eigin vegum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun sem Ferðamálastofa fékk MMR til að gera meðal erlendra ferðamanna hér á landi í fyrrasumar. „Tveir af hverjum þremur höfðu bókað ferðina innan fjögurra mánaða fyrir brottför og við ákvarðanatökuna höfðu langflestir (75,4 prósent) aflað sér upplýsinga um Ísland á netinu," segir á vef Ferðamálastofu. Þá kemur fram að tæpur helmingur ferðamannanna, eða 46 prósent, nýtti bílaleigubíla til ferða sinna um landið. Um leið kemur í ljós að vegakerfið er einn af þeim þáttum sem margir ferðamenn töldu að mætti bæta hér á landi. „Ferðin stóðst væntingar flestra og töldu langflestir (79,1 prósent) líklegt að þeir myndu ferðast til Íslands aftur í framtíðinni og það að sumri til," segir í umfjöllun Ferðamálastofu. Markmiðið með könnuninni er sagt vera að afla upplýsinga um erlenda ferðamenn, aðdragandann að ferð þeirra, ferðahegðun, eyðsluhætti og viðhorf til ýmissa þátta íslenskrar ferðaþjónustu. Um var að ræða netkönnun og netföngum safnað með skipulögðum hætti í flugstöð Leifs Eiríkssonar og við Norrænu, ferjuna á Seyðisfirði, 5. júlí til 31. ágúst 2011. Úrtakið var 4.545 manns og svarhlutfall 51,9 prósent. - óká
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira