Fréttaskýring: Ágreiningur um öll grundvallaratriðin 19. janúar 2012 06:00 Formaður VG, Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra sjávarútvegsmála, afboðaði komu sína, fáum til sérstakrar ánægju í troðfullum sal í Iðnó. fréttablaðið/anton
Rökræður forsvarsmanna fjórflokksins um sjávarútvegsmál í gær staðfestu að breytingar á stjórn fiskveiða verður stærsta og erfiðasta mál Alþingis í vetur. Rökræður forsvarsmanna fjórflokksins um sjávarútvegsmál í gær gáfu ekki vonir um að breytingar á lögum um stjórn fiskveiða komi til með að verða í öðrum farvegi en hingað til. Sátt er um fátt, ef nokkuð, af því sem þarf að leiða til lykta á næstu vikum og mánuðum. Þau Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, og Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, mættust í gær í boði Iceland Seafood International sem stóð fyrir markaðsdegi 2012. Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra afboðaði komu sína og það gerði líka Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Fyrst af öllu voru fjórmenningarnir ekki sammála um hversu stór áskorun það er að breyta lögum um stjórn fiskveiða. Bjarni fullyrti að ríkisstjórnin hafi ekki sýnt fram á hvað það sé sem þarf að laga. Ef svo væri þá væri málið úr sögunni. Ólína benti Bjarna á þá miklu byggðaröskun sem hefur orðið í landinu eftir að kvótakerfið komst á. „Það er stórkostlega mikið að,“ sagði Ólína enda fælist í kerfinu skerðing á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og atvinnufrelsissjónarmiðum, svo fátt sé talið. Á sumt var hægt að festa fingur. Um lengd nýtingarsamninga sagði Ólína að 15 til 20 ár væri viðmiðið, enda segði í stjórnarsáttmála að stefnt væri að því að breyta kerfinu á þeim tíma. Bjarni taldi eðlilegt að miða við 25 ár, að vissum forsendum gefnum. Björn Valur sagði þetta ráðast af mörgum þáttum; rekstrarskilyrðum, möguleikum til fjármögnunar og eðlilegum tíma til afskrifta. Í því ljósi taldi hann eðlilegt að tala um 15 til 25 ár. Gunnar Bragi, sem nefndi 20 til 30 ár, lýsti því yfir að í þessu atriði kristallaðist óþolandi óvissa um framtíð greinarinnar. Hann sagði að umræðan, án þess að nefna nöfn, væri í þeim anda að í sjávarútvegi væru „tómir svikahrappar.“ Hann taldi, spurður af Ólínu, að starfsskilyrði og leikreglur í greininni hafi ekki verið með óeðlilegum hætti eftir að kvótakerfið komst á. Um veiðigjaldið spannst nokkur umræða. Bjarni taldi sýnt að ef samningaleið verður farin þá falli það gjald niður enda verði greitt fyrir samninga á milli útgerða og ríkis. Hins vegar sagði hann það vera marklaust að tala um sjávarútvegsmál á þeim nótum að framsal og veðsetning yrðu bönnuð.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Sjá meira