Innlent

Rætt um að Framsókn komi inn í meirihlutasamstarfið

Ómar Stefánsson, er bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi.
Ómar Stefánsson, er bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar vinna nú að myndun nýs meirihluta í bænum. Rætt hefur verið við Framsóknarmenn um að taka sæti Næsta besta flokksins sem sleit meirihlutasamstarfinu.

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn og formaður bæjarráðs, sagði í hádegisfréttum okkar í gær að það væri grundvallar ágreiningur milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksing og Framsóknarflokksins um stefnumál í Kópavogsbæ.

Næst besti flokkurinn sleit meirihlutasamstarfi á þriðjudag en ágreiningur kom upp um hvernig staðið var að uppsögn Guðrúnar Pálsdóttur bæjarstjóra þótt bæjarfulltrúar allra flokka sem standa að meirihlutanum hafi verið sammála um að skipta þyrfti um bæjarstjóra.

Óformlegar þreifingar hafa átt sér stað um myndun nýs meirihluta meðal allra kjörinna fulltrúa. Samkvæmt heimildum fréttastofu líta sjálfstæðismenn í Kópavogi, sem eiga flesta kjörna fulltrúa eða fjóra, svo á að skynsamlegast sé að bíða fram að kosningum, en þar á bæ er ekki talið fýsilegt að mynda nýjan meirihluta með Samfylkingunni ef flokkurinn gerir kröfu um bæjarstjórastólinn, þ.e sjálfstæðismenn geta ekki sætt sig við Guðríði Arnardóttur sem bæjarstóra.

Ekki náðist í Guðríði í morgun. Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi, sagði í samtali við fréttastofu að alls kyns þreifingar væru í gangi. Hann sagði til skoðunar að Framsóknarflokkurinn kæmi inn í samstarfið og tæki sæti Næst besta flokksins, en hann sagði það þreifingar.

Sjálfstæðismenn gætu myndað meirihluta með Næst besta flokknum og Framsókn en Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknar, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að engar formlegar viðræður væru í gangi við Framsóknarmenn og ekki væri verið að mynda nýjan meirihluta með Framsóknarmönnum eins og staðan væri í dag.

Fréttastofa náði tali af Hjálmari Hjálmarssyni, bæjarfulltrúa Næsta besta flokksins, rétt fyrir hádegisfréttir. Hjálmar sagðist hafa rætt óformlega við fulltrúa annarra flokka, en hann sagðist hafa slitið meirihlutasamstarfinu vegna vinnubragða Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Hjálmar sagði að í raun væri myndun nýs meirihluta í lausu lofti í augnablikinu. Hann útilokaði ekki óbreytt meirihlutasamstarf ef samkomulag næðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×