Frumvarp sem bannar fólki að skoða barnaklám tilbúið 19. janúar 2012 10:45 Róbert R. Spanó
Ekki hefur verið bannað með lögum að skoða barnaklám hingað til, einungis að hafa það í vörslu sinni, dreifa því og framleiða. Boðaðar eru breytingar á því í nýju frumvarpi. Fleiri varnir gegn misnotkun í lög. Banna á með lögum að skoða barnaklám á vefnum, prenti eða myndböndum. Í núverandi hegningarlögum er einungis refsivert að hafa barnaklám í vörslu sinni, dreifa því eða framleiða. Í nýju lagafrumvarpi sem á að ríma við Evrópuráðssamninginn, sem var undirritaður af hálfu Íslands í febrúar árið 2008, eru ýmis ákvæði sem ganga út á að koma í veg fyrir og vernda börn gegn kynferðislegri misnotkun. Íslensk löggjöf er nú þegar í samræmi við ákvæði samningsins að mestu leyti, segir Róbert R. Spanó, lagaprófessor og formaður refsiréttarnefndar innanríkisráðuneytisins, sem samdi frumvarpið að beiðni ráðherra. Þó segir í frumvarpinu að nýtt ákvæði um bann við vörslu, dreifingu og framleiðslu barnakláms verði lögfest. „Jafnframt er lagt til að lögfest verði mikilvægt ákvæði sem bannar að maður með samskiptum á netinu eða annarri upplýsinga- eða fjarskiptatækni mæli sér mót við barn yngra en 15 ára í því skyni að hafa við barnið samræði, önnur kynferðismök eða til að áreita það kynferðislega á annan hátt,“ segir Róbert. „Slíkt ákvæði hefur ekki verið í íslenskum lögum áður með sambærilegum hætti.“ Samkvæmt frumvarpinu verður fyrningarfrestur mála þar sem brotið hefur verið kynferðislega á barni lengdur. Fyrning vegna brota þar sem barn er tælt í vændi eða því greitt fyrir vændi hefst ekki fyrr en barnið sem á í hlut verður 18 ára. Það sama á við ef barn er látið taka þátt í nektarsýningum. Róbert segir að leitast hafi verið við að fylgja efnisákvæðum Evrópuráðssamningsins eins og kostur var, en ákvæðin jafnframt hugsuð þannig að aukið væri við refsivernd barna eins og kostur er. Frumvarpið bíður nú fyrstu umræðu á Alþingi. Róbert heldur erindi um málið á ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í HÍ á morgun.- sv
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Sjá meira