Innlent

Vilhjálmur skilar brúðargjöfinni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrverandi stjórnarformaður Eirar.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrverandi stjórnarformaður Eirar.
Vilhjálmur Vilhjálmsson og eiginkona hans hafa ákveðið að skila brúðargjöf frá Eir, að andvirði 100 þúsund krónur. Sigurður H. Guðmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Eir, sagði frá gjöfinni í morgun en hann endurgreiddi Eir hana ásamt 200 þúsund króna gjafabréfi sem hann lét Jóhannesi Rúnari Jóhannessyni, hæstaréttarlögmanni og tengdasyni sínum, í té.

„Í ljósi fjölmiðlaumræðu um brúðargjöf til okkar hjóna frá Eir í júní 2008 og með hvaða hætti fyrrverandi forstjóri Sigurður H. Guyðmundsson hefur matreitt málið í fjölmiðlum höfum við ákveðið að skila þessari brúðargjöf og endurgreiða andvirði hennar til Eirar: Það eru fráleitar ásakanir fyrrverandi forstjóra að ég hafi skipað honum að gera þetta Þeir sem til þekkja vita að fyrrverandi forstjóri skipaði en lét aldrei skipa sér," segir Vilhjálmur í yfirlýsingu.

Vilhjálmur segir mikilvægt að þeir sem fjalli um stöðu Eirar fái svigrúm til þess að vinna að málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×