Bjóða Oddnýju til opins fundar á ný 21. janúar 2012 06:15 Oddný Sturludóttir
Foreldrar barna í Hamraskóla í Grafarvogi hafa ítrekað boð til Oddnýjar Sturludóttur, formanns skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, um að mæta á opinn fund í skólanum og ræða fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi. Fundurinn er áætlaður á fimmtudaginn eftir viku. Foreldrarnir, sem eru margir hverjir óánægðir með fyrirhugaðan flutning unglingadeildar Hamraskóla yfir í Foldaskóla, hafa gagnrýnt Oddnýju fyrir að hafna slíku fundarboði og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu lét bóka á fundi þess að fáheyrt væri að kjörinn fulltrúi neitaði að eiga samráð við þá sem ættu hagsmuna að gæta. Oddný sagði í Fréttablaðinu í gær að þetta væri misskilningur. Boðað hefði verið til fundarins einhliða og hún í staðinn boðið foreldrunum til fundar við sig. Þegar hefði verið haldinn opinn fundur um málið. Marta Kristín Hreiðarsdóttir, einn talsmanna foreldranna, er óánægð með þessi viðbrögð Oddnýjar. Hún bendir á að enginn kjörinn fulltrúi hafi verið á opna fundinum í desember. Í tölvupósti frá Oddnýju til eins talsmannanna segir að hún telji ekki þörf á opnum fundi um málið, en því eru foreldrarnir ósammála og hafa því boðað annan slíkan fund og vonast eftir þátttöku kjörinna fulltrúa. - sh
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Sjá meira