Greiddu atkvæði um allt annað en Geir Haarde Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. janúar 2012 15:33 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi. Í bakgrunni má sjá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. mynd/ gva.
Það eru sterkar tilfinningar sem berast í brjósti þeirra sem sæti eiga á Alþingi Íslendinga eftir atburði gærdagsins. Þá felldi Alþingi frávísunartillögu sem lögð hafi verið fram á tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að fella niður málshöfðun gegn Geir Haarde. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er stuttorð en skýrmælt um málið. „Það eru mikil vonbrigði þegar þrískiptingu valdsins er kastað út úr Alþingishúsinu en þetta varð niðurstaðan," segir Eygló í samtali við Vísi. Hún var einn þeirra þingmanna sem lögðu frávísunartillöguna fram. Hún vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um málið en vísaði á skrif á bloggsíðu sinni. Þar segir Eygló að hjá fæstum þingmönnum, ef einhverjum, hafi atkvæðagreiðslan snúist um Geir H. Haarde. Atkvæðagreiðslan hafi snúist um eitthvað allt annað. „Hjá sumum snérist þetta um reiði þeirra gagnvart samherjum sínum og vonbrigði með lítið breytt vinnubrögð. Skort á réttlæti. Núverandi stjórnvöld væru ekkert betri. Enn aðrir voru að spila um stöðu sína í flokknum. Ríkisstjórnina. Einhverjir voru hræddir við hvað gæti komið fram við réttarhöldin," segir hún. Eygló segir að fyrir sér hafi málið snúist um þrískiptingu valdsins, virðingu fyrir stjórnarskránni og lögum. Segja má að þögnin um málið sé æpandi. Formenn stjórnarflokkanna hafa ekkert tjáð sig opinberlega um málið í dag. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í samtali við RÚV í gær að hún vissi ekki hvaða áhrif málið myndi hafa á ríkisstjórnarsamstarfið. Það yrði bara að koma í ljós. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sagði á fésbókarsíðu sinni að málið markaði þáttaskil. En hún hefur ekki útskýrt orð sín nánar. Magnús Orri Schram og Lilja Rafney Magnúsdóttir, sem fluttu frávísunartillöguna fyrir hönd Samfylkingarinnar og VG, hafa ekki svarað símanum í dag. Hið sama er að segja um Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Fleiri fréttir Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Sjá meira