Innlent

Rúmlega 70 frumvörp bíða afgreiðslu

Rúmlega sjötíu stjórnarfrumvörp bíða nú afgreiðslu á Alþingi en þar af hafa tuttugu og fjögur mál enn ekki verið tekin til fyrstu umræðu. Ekkert samkomulag er um framhald þingstarfa og óljóst hvenær þing fer í sumarfrí.

Viðræður oddvita stjórnmálaflokkanna um framhald þingstarfa sigldu í strand á föstudag vegna ágreinings um veiðigjaldafrumvarpið.

Óformlegar þreifingar hafa verið í gangi um helgina en ekkert samkomulag er í sjónmáli.

Miklar tafir hafa orðið á þingstörfum en upphaflega stóð til að ljúka vorþingi um síðustu mánaðamót eða fyrir rúmlega hálfum mánuði.

Fyrir þingi liggja rúmlega sjötíu stjórnarfrumvörp sem á eftir að afgreiða. Þar á meðal kvótafrumvörpin, frumvarp um fækkun lögregluumdæma, breytingar á gjaldeyrishöftunum, fumvarp um breytingar á lögum um sparisjóði og breytingar á skattalögum - svo fátt eitt sé nefnt.

Fimm mál bíða þriðju og síðustu umræðu en tuttugu og fjögur eru ekki komin á dagskrá.

Náist samkomulag um þingstörf verður hægt að afgreiða töluverða fjölda mála á stuttum tíma en ljóst er að einhverjum verður frestað fram á haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×