Annþór og Börkur fengu ekki að mæta í héraðsdóm 1. júní 2012 11:04 Annþór Kristján Karlsson.
Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson mættu ekki í Héraðsdóm Reykjaness í morgun er þingfesting í máli gegn þeim fór fram. Að sögn verjenda þeirra fengu þeir ekki leyfi til þess þar sem þeir sitja í einangrun út af öðru máli. Annþór og Börkur hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir og ólögmæta nauðung. Átta aðrir eru ákærðir í málinu og mættu þeir allir í þingfestinguna og neita allir sök. Verjandi Barkar sagði við dómara að Börkur hefði viljað koma í dómsal en ekki fengið leyfi þar sem þeir sitja í einangrun grunaðir um að hafa orðið manni að bana á Litla-Hrauni. Verjandi Annþórs sagði að verið væri að brjóta grundvallar mannréttindi með þessu, allir ættu rétt á að fá mæta í dómsal. Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari í málinu, spurði þá verjanda Annþórs hvort honum fyndist rétt, þar sem þeir sætu í einangrun, að þeir sætu hér á meðal ákærðu. Hann svaraði því svo að allir ættu rétt á að mæta í dómsal og það væri eflaust mögulegt að flytja þá í sitthvoru lagi fyrir dómara. Málið snýst um þrjár líkamsárásir í október og desember á síðasta ári og eina í janúar á þessu ári. Annþór er ákærður fyrir að hafa skipulagt allar árásirnar og Börkur tvær. Í einu tilviki fóru þeir Annþór og Börkur vopnaðir á heimili manns á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn opnaði fyrir þeim en þrír til viðbótar voru í íbúðinni. Samkvæmt ákærunni sendi Annþór svo skilaboð til sjö manna, sem biðu fyrir utan. Hann hleypti þeim inn og réðist hópurinn á fólkið með golfkylfum, handlóðum, prikum og öðrum bareflum þannig að einn hlaut, auk annarra áverka, opið beinbrot, annar handleggsbrotnaði og hinir tveir hlutu höfuðáverka. Neyddu mann til að pissa á félaga sinn Í annarri árás er Berki og Annþóri gefið að sök að hafa skipulagt árás á þrjá menn í heimahúsi. Þá fóru þeir vopnaðir, ásamt fleiri mönnum og réðust á þá sem í íbúðinni voru, börðu þá í hnakka og líkama og kröfðust þess að þeir greiddu sér hálfa milljón króna. Þá neyddu þeir einn mannanna til að kasta af sér þvagi yfir annan á meðan Annþór hélt honum niðri. Eru Annþór og Börkur ákærðir fyrir árásina sem og frelsissviptingu og tilraun til fjárkúgunar. Tveir til viðbótar eru ákærðir fyrir aðild að árásinni en aðrir sem tóku þátt í henni eru óþekktir. Annþór réðst á mann heima hjá sér Að auki eru tveir menn ákærðir fyrir að hafa farið með tvo aðra, sem þeir töldu sig eiga sökótt við, heim til Annþórs, sem veittist að þeim með höggum og spörkum í andlit og líkama. Þá tók hann annan manninn kverkataki þannig að hann missti meðvitund og féll í gólfið. Annþór krafðist þess að þeir létu hann fá peninga og hótaði því að ef þeir segðu frá árásinni færu þeir í „áskrift" hjá honum sem væri ævilöng skuld við hann. Annþór og Börkur voru báðir á reynslulausn þegar þeir réðust á mennina. Þeir voru umsvifalaust fangelsaðir eftir að kærur bárust. Nú hafa þeir verið settir í einangrun, grunaðir um að hafa orðið manni að bana á Litla - Hrauni.
Mál Annþórs og Barkar Dómsmál Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fleiri fréttir Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Sjá meira