Innlent

Tvöfalt fleiri karlar en konur flytja frá landinu

Í fyrra fluttu 986 fleiri karlar úr landi en til landsins og 418 fleiri konur fluttu frá landinu en til þess.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar . Þar segir að fram til ársins 2003 fluttust að jafnaði fleiri konur til landsins en karlar. Þessi þróun snerist við á tímabilinu frá 2004–2008. Á þeim árum fluttust til landsins 4.215 fleiri karlar en konur. Á undanförnum þremur árum hafa hins vegar 3.833 fleiri karlar en konur flust úr landi umfram aðflutta. Hlutfall kynjanna í mannfjöldanum hefur því jafnast á nýjan leik.

Fjöldi innanlandsflutninga náði hámarki á árinu 2007 en þá voru tilkynntir flutningar 58.186 einstaklinga. Eftir það fækkaði innanlandsflutningum jafnt og þétt og náðu þeir lágmarki sínu árið 2010 þegar 46.535 einstaklingar skiptu um lögheimili. Árið 2011 varð aftur á móti fjölgun í fyrsta sinn frá árinu 2007 en þá mældust innanlandsflutningar 49.398. Flestir þeirra voru flutningar innan sveitarfélags (31.067). Alls fluttu 10.040 einstaklingar milli sveitarfélaga innan landsvæðis árið 2011 en 8.291 einstaklingur flutti frá einu landsvæði til annars.

Þegar aðeins er litið á innanlandsflutninga lá straumurinn frá öllum landsvæðum til höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja. Þangað fluttu alls 682 umfram brottflutta til annarra landsvæða. Hlutfallslega var flutningsjöfnuðurinn óhagstæðastur á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum, Suðurlandi og Vesturlandi en brottfluttir til annarra landsvæða voru litlu fleiri en aðfluttir á Austurlandi og Norðurlandi eystra.

Langflestir þeirra sem fluttust til útlanda komu frá höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum (1.280 alls af 1.404). Fleiri fluttust til útlanda frá öðrum landsvæðum en komu, nema á Austurlandi og Vesturlandi. Þegar litið er til bæði innanlands og utanlandsflutninga var Austurland eina landsvæðið sem kom út með jákvæðan flutningsjöfnuð árið 2011 en þangað fluttu 4 fleiri en fluttu brott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×