Tvöfalt fleiri karlar en konur flytja frá landinu 24. janúar 2012 09:26
Í fyrra fluttu 986 fleiri karlar úr landi en til landsins og 418 fleiri konur fluttu frá landinu en til þess. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar . Þar segir að fram til ársins 2003 fluttust að jafnaði fleiri konur til landsins en karlar. Þessi þróun snerist við á tímabilinu frá 2004–2008. Á þeim árum fluttust til landsins 4.215 fleiri karlar en konur. Á undanförnum þremur árum hafa hins vegar 3.833 fleiri karlar en konur flust úr landi umfram aðflutta. Hlutfall kynjanna í mannfjöldanum hefur því jafnast á nýjan leik. Fjöldi innanlandsflutninga náði hámarki á árinu 2007 en þá voru tilkynntir flutningar 58.186 einstaklinga. Eftir það fækkaði innanlandsflutningum jafnt og þétt og náðu þeir lágmarki sínu árið 2010 þegar 46.535 einstaklingar skiptu um lögheimili. Árið 2011 varð aftur á móti fjölgun í fyrsta sinn frá árinu 2007 en þá mældust innanlandsflutningar 49.398. Flestir þeirra voru flutningar innan sveitarfélags (31.067). Alls fluttu 10.040 einstaklingar milli sveitarfélaga innan landsvæðis árið 2011 en 8.291 einstaklingur flutti frá einu landsvæði til annars. Þegar aðeins er litið á innanlandsflutninga lá straumurinn frá öllum landsvæðum til höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja. Þangað fluttu alls 682 umfram brottflutta til annarra landsvæða. Hlutfallslega var flutningsjöfnuðurinn óhagstæðastur á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum, Suðurlandi og Vesturlandi en brottfluttir til annarra landsvæða voru litlu fleiri en aðfluttir á Austurlandi og Norðurlandi eystra. Langflestir þeirra sem fluttust til útlanda komu frá höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum (1.280 alls af 1.404). Fleiri fluttust til útlanda frá öðrum landsvæðum en komu, nema á Austurlandi og Vesturlandi. Þegar litið er til bæði innanlands og utanlandsflutninga var Austurland eina landsvæðið sem kom út með jákvæðan flutningsjöfnuð árið 2011 en þangað fluttu 4 fleiri en fluttu brott.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira