Sautján tilkynnt um ofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar 17. janúar 2012 09:45 Fyrrum stjórnendur Landakotsskóla og sumarbúða á vegum kaþólsku kirkjunnar hafa verið borin þungum sökum um kynferðisbrit, einelti og annað ofbeldi. Fréttablaðið/GVA
Sautján manns hafa gefið sig fram undir nafni til rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar vegna meints ofbeldis sem átti sér þar stað fyrir nokkrum áratugum. Enginn kennari eða aðstandandi gefið sig fram. Sautján hafa gefið sig fram undir nafni til rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar og greint frá ofbeldi af hálfu fyrrverandi starfsmanna kirkjunnar. Þó hafa enn fleiri haft samband án þess að greina frá nafni. Um er að ræða fullorðna einstaklinga í öllum tilvikum. Fólkið var annaðhvort nemendur við Landakotsskóla eða gestir í sumarbúðunum Riftúni í Ölfusi sem voru reknar af kirkjunni. Rannsóknarnefndin var sett á fót eftir að ásakanir um gróft kynferðislegt ofbeldi, einelti og vanrækslu á hendur fyrrverandi skólastjóra Landakotsskóla fóru að berast frá nemendum skólans og greint var frá í Fréttatímanum. Nefndin á að rannsaka starfshætti og viðbrögð kaþólsku kirkjunnar á Íslandi vegna ásakananna. Greint hefur verið frá því að séra George, sem var skólastjóri Landakotsskóla, og Margrét Müller, þýsk kennslukona við skólann, séu sér í lagi borin þungum sökum um gróft ofbeldi af fyrrum nemendum og gestum sumarbúðanna. Rannsóknarnefndin auglýsti eftir viðmælendum vegna málsins á síðasta ári og rann frestur til að setja sig í samband við hana út 1. desember. Enginn kennari, aðstandandi nemanda eða foreldri hefur gefið sig fram, heldur einungis fólk sem telur sig hafa verið beitt einhvers konar ofbeldi. Hjördís Hákonardóttir, fyrrverandi hæstaréttarlögmaður og formaður nefndarinnar, segist gjarnan vilja heyra í þeim sem kunna að hafa séð ástæðu til þess að tala við stjórnendur í Landakotsskóla eða stjórn kirkjunnar vegna líðan barna þar fram til ársins 2005. „En engir aðstandendur eða kennarar hafa gefið sig fram," segir hún. „Okkar rannsóknarefni eru viðbrögð kirkjunnar og það væri auðvitað gagnlegast að heyra í þeim sem hefðu talið að eitthvað óeðlilegt væri í gangi, jafnvel kvartað við stjórnendur eða látið vita." Hjördís bætir við að í ljósi þess hversu langur tími hefur liðið frá meintum brotum, séu margir aðstandendur nemenda og kennarar látnir. Á næstu dögum mun nefndin ræða við starfsmenn kirkjunnar og skólans eftir því sem tilefni er til og kanna hvort einhver frekari gögn er að finna sem geta gagnast rannsókninni. Stefnt er að því að skila af sér skýrslu næsta haust.- sv
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Fleiri fréttir Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Sjá meira