Ólafur Ragnar fundaði með Ban Ki-Moon og bauð honum í heimsókn 17. janúar 2012 11:20 Ólafur Ragnar og Ban Ki-Moon í gær.
Forseti Íslands átti í gær fund í Abu Dhabi með framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, en þeir sækja báðir Heimsþing hreinnar orku sem þar er haldið. „Á fundinum var einkum rætt um aukna nýtingu hreinnar orku til að hamla gegn loftslagsbreytingum. Slíkar aðgerðir eru grundvallarþáttur í stefnumörkun Ban Ki-moon á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Forseti Íslands gerði grein fyrir jarðhitaverkefnum á vegum Íslendinga erlendis, t.d. í Kína, Indlandi, Filippseyjum, Afríku, Suður-Ameríku og Evrópu." Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að uppbygging hitaveitna, með sama hætti og framkvæmd var í Reykjavík á sínum tíma, gæti nýst fjölmörgum borgum í Kína til að draga úr kolanotkun. „Þá gerði forseti Íslands grein fyrir góðri reynslu af því að nota jarðvarma til að þurrka matvæli og gæti útbreiðsla slíkra vinnsluaðferða orðið verulegt framlag til að auka geymsluþol matvæla og styrkja þar með fæðuöryggi í veröldinni. Hvatti forseti til að stofnanir Sameinuðu þjóðanna efndu til víðtæks samstarfs í þessu skyni og skýrði frá heimsókn sérfræðinga Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) til Íslands á síðasta ári en markmið hennar var m.a. að kanna marga þætti jarðhitanýtingar." Ennfremur gerði Ólafur Ragnar Forseti Íslands gerði framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna grein fyrir vaxandi samvinnu á Norðurslóðum og alþjóðlegri ráðstefnu um bráðnun jökla á Himalajasvæðinu sem haldin var á Íslandi í fyrra. Mikilvægt væri að efla samstarf ríkja á Himalajasvæðinu þar eð bráðnun jökla þar stofnaði vatnsbúskap nær tveggja milljarða manna í hættu. Þar gæti góð reynsla af samvinnu á Norðurslóðum verið mikilvæg fyrirmynd." „Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hafði einnig verulegan áhuga á endurreisn efnahagslífsins á Íslandi og hvernig á því stæði að Íslendingum gengi betur að ná sér á strik en mörgum ríkjum innan Evrópusambandsins. Óstöðugleiki í fjármálum Evrusvæðisins væri verulegt áhyggjuefni," segir einnig um leið og þess er getið að Ban Ki-moon hafi mikinn áhuga á að þiggja boð forseta Íslands og íslenskra stjórnvalda um að heimsækja landið og kynna sér nýtingu hreinnar orku, jöklarannsóknir og samvinnu á Norðurslóðum.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira