Umræða um áhrif krabbameins á kynlíf getur bjargað mannslífum Hugrún Halldórsdóttir skrifar 17. janúar 2012 21:27
Opinská umræða um áhrif krabbameins á kynlíf getur átt þátt í að bjarga mannslífum, segir karlmaður sem sjálfur missti alla löngun og kyngetu eftir að hann greindist með sjúkdóminn þrítugur að aldri. Steinar Aðalbjörnsson gekkst undir skurðaðgerð fyrir tólf árum þar sem annað eistað var fjarlægt vegna krabbameins. Hann komst fljótlega til heilsu og þurfti hvorki að ganga í gegnum geisla né lyfjameðferð, en að einhverju tíma liðnum fór hann að finna fyrir skringilegum einkennum. „Ég kem fáu í verk og það sem kannski hefur hve mest neikvæð áhrif á mig, var getan til þess að stunda kynlíf og áhuginn til að stunda kynlíf," segir Steinar. Hann segir, án þess að gera lítið úr sjúkdómnum, að erfiðleikarnir í raun byrjað þegar einkennin gerðu vart við sig. „Maður fór að finna alls konar ástæður til þess að fara ekki að sofa þegar kærastan fór að sofa. Og svo var það líka orðið þannig að maður fór bara að hugsa, hvernig kemst maður út úr þessu, hvernig getur maður hætt með henni til þess að þurfa ekki að glíma við þetta. Þetta var orðið svo þungt á manni." Steinar prófaði meðal annars stinningarlyf án þess að vera kunnugt um rót vandans, sem var minni framleiðsla testesteróns. Nú fær hann hormónasprautur á sjö vikna fresti og meðferðin skilar tilsettum árangri. „Þremur eða fjórum vikum eftir sprautuna þá er ég orðinn virkilega góður, virkilega sáttur við sjálfan mig og haga mér í raun og veru eins og ég á að gera, og eins og flest fólk myndi gera." Steinar verður gestafyrirlesari ásamt sérfræðingum og öðrum sem gengið hafa í gegnum svipaða reynslu á ráðstefnunni Kynlíf og krabbamein sem krabbameinsfélagsins stendur fyrir á fimmtudaginn klukkan hálf fimm. Talið er að 50-70% krabbameinssjúklinga glími við einhvers konar kynlífsvandamál sem rekja má til sjúkdómsins eða meðferðar og því snertir þetta væntanlega marga Íslendinga. Steinar telur að opinská umræða um áhrif krabbameins geti hjálpað mörgum. „Þetta er stundum bara spurning um líf og dauða. Ef karlmenn standa sig ekki í bólinu þá er þessi pressa sem við oft á tíðum setjum sjálfir á okkur, að við séum ómögulegir. Menn eiga þá til að koma sér út úr hjónaböndum af því að þeir eru bara ekki að standa sig og það kannski tekur við þunglyndi og það eru þess dæmi á meðal karlmanna um allan heim að menn taki líf sitt þegar þeir eru hreinlega bara komnir svo langt niður vegna þess að þeir geta ekki sinnt þessari skyldu sinni, að standa sig í svefnherberginu."Hér má finna nánari upplýsngar um ráðstefnu Krabbameinsfélagsins.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sjá meira