Innlent

Fegra umhverfið í Kópavogi með veggjalist

Ungmenni í sumarvinnu í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, hafa undanfarna daga fengið útrás fyrir listsköpun sína og málað graffiti myndir á stóran vegg við bílastæðið sunnan við Auðbrekku 6 í Kópavogi. Í tilkynningu frá bænum segir að veggurinn hafi áður verið mikið lýti á umhverfinu en nú sé þar nýtt listaverk að líta dagsins ljós.

Frumkvæðið áttu listamenn við Auðbrekku en verkið er styrkt af Kópavogsbæ.

„Markmiðið er ekki bara að fegra og lífga upp á svæðið heldur einnig að kenna ungmennum að bera virðingu fyrir umhverfi sínu. Þannig verður veggurinn ekki lengur notaður fyrir ómarkvisst krot heldur er nú að fæðast þar litríkt listaverk sem ætti að vera öllum til sóma," segir ennfremur.

Stefnt er að því að verkið verði tilbúið fyrir 17. júní. Þá ætla ungmennin að halda listasýningu og grilla fyrir vini og vandamenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×