Innlent

Konunni enn haldið sofandi

BBI skrifar
Húsið leit svona út eftir brunann.
Húsið leit svona út eftir brunann. Mynd/Friðrik Þór
Konu sem stökk út úr brennandi húsi er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Líðan hennar er óbreytt og vakthafandi læknir getur ekki gefið frekari upplýsingar um batahorfur.

Konan kastaði sér út um glugga á logandi húsi í Borgarnesi í fyrrinótt. Fallið var 6 til 8 metrar og steinsteypt gangstétt fyrir neðan.

Þyrla kom konunni á Landspítalann og þar liggur hún nú undir umsjá lækna.

Lögreglan rannsakar nú eldsupptökin. Tæknimenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á vettvang til rannsóknar. Niðurstöðu er að vænta í næstu viku að sögn lögreglumanns á Borgarnesi.


Tengdar fréttir

Haldið sofandi í öndunarvél eftir sex metra fall

Konu á þrítugsaldri, sem stökk út úr brennandi húsi í Borgarnesi rétt fyrir klukkan fjögur í nótt, er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni. Glugginn er á rishæð hússins og féll hún um sex metra til jarðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×