Innlent

Konu enn haldið sofandi - húsið líklega ónýtt

Kristján Már Unnarsson skrifar
Konu, sem stökk út úr brennandi húsi í Borgarnesi í nótt, er haldið sofandi á gjörgæsludeild. Tveir karlmenn voru einnig hætt komnir í brunanum.

Slökkviliðið var kallað út rétt fyrir klukkan fjögur í nótt.

„Þegar fyrsti bíll kom að þá logaði úr kvistunum," sagði Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðstjóri Borgarbyggðar. Kona á þrítugsaldri lá þá slösuð við húsið eftir að hafa kastað sér út úr brennandi húsinu út um glugga í risinu. Bjarni telur að fallið hafi verið um sex til átta metrar. Konan lenti á steyptri stétt.

Hún hlaut mikla áverka en þyrla kom til móts við sjúkrabíl við Hvalfjarðargöng og kom konunni síðasta áfangann til Reykjavíkur.

Tveir karlmenn bjuggu einnig í húsinu en íbúarnir eru allir Pólverjar. Þeir voru ekki í jafn mikilli hættu og konan. Þetta er eitt af helstu húsum Borgarness en það skemmdist illa, bæði af eldi en einnig vatni.

„Já, húsið er nánast ónýtt," sagði Bjarni. Konan er illa slösuð og er haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×