Blindfullur og gifsblandan misheppnuð 12. desember 2012 10:00 gifstólið sem Cynthia Plaster Caster tók af Smutty Smiff var algjört klúður. fréttablaðið/GVA
Rokkabillíkóngurinn Smutty Smiff, útvarpsmaður á X-inu, leyfði goðsagnakenndu grúppíunni Cynthiu Plaster Caster að taka gifsafsteypu af getnaðarlim sínum. „Þetta byrjaði vel en svo fór allt í steik,“ segir útvarpsmaðurinn og kontrabassaleikarinn Smutty Smiff, en grúppían Cynthia Albritton reyndi að gera afsteypu af getnaðarlim hans árið 1980. Albritton, sem er betur þekkt sem Cynthia Plaster Caster, gerði garðinn frægan á 7. og 8. áratug síðustu aldar með gifsafsteypum sínum af æxlunarfærum frægra tónlistarmanna. Hennar frægasti skúlptúr er án efa af veldissprota gítargoðsins Jimi Hendrix. „Við vorum bæði blindfull og gifsblandan var eitthvað misheppnuð. Ég fékk því aldrei að vera meðal sýningargripa,“ segir Smutty, sem hefur verið búsettur hér á landi síðustu fimm ár og á íslenska eiginkonu. Nafn Smuttys má engu að síður finna á vefsíðu Albritton, en þar hefur hún skrásett allar þær afsteypur sem hún hefur gert. Á lista Albritton, sem bauð sig fram til borgarstjóra Chicago árið 2010, kennir ýmissa grasa. Má þar nefna nöfn á borð við fyrrnefndan Hendrix, Jello Biafra úr pönksveitinni Dead Kennedys, Eric Burdon úr The Animals, og söngkonurnar Peaches og Karen O. „Ég spilaði reglulega í Chicago með hljómsveitinni minni, The Rockats, og hún kom að sjá okkur. Okkur varð vel til vina og hún stakk upp á því að við gerðum þetta,“ segir Smutty, en hann hugsaði sig ekki tvisvar um. „Tilhugsunin um afsteypur okkar Hendrix, hlið við hlið, var nóg til þess að ég lét slag standa.“ Aðspurður um hvað eiginkonunni finnist um þetta uppátæki segist Smutty reyndar aldrei hafa sagt henni frá þessu. „Ég var tvítugur og ógiftur. Hún á bara eftir að hlæja að mér.“ haukur@frettabladid.is
Mest lesið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Madison Beer trúlofast NFL-kappa Lífið Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Fleiri fréttir „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Sjá meira