Ráð gert fyrir fundi um kjötkvóta í mánuðinum Óli Kristján Ármannsson skrifar 3. janúar 2012 11:00 Viðræður við Evrópusambandið um að auka tollfrjálsan kvóta á lambakjöti sem íslenskir bændur flytja út úr 1.850 tonnum í 4.000 tonn komust ekki af stað á árinu sem er að líða. Fréttablaðið/GVA
Viðræður við Evrópusambandið (ESB) um aukningu á tollfrjálsum útflutningskvóta Íslands á lambakjöti frestast fram á nýja árið. Snemmsumars var frá því greint að þreifingar væru hafnar um aukningu kvótans og svo bárust af því fregnir í september að könnunarviðræður ættu að hefjast í þeim mánuði. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er enn beðið umboðs til viðræðna frá framkvæmdastjórn ESB. Búist hafi verið við því fyrir áramót, en nú sé talið að það verði í janúar. Skortur á lambakjöti í heiminum olli á árinu verðhækkunum og vöruskorti sem gerði að verkum að útflutningur héðan varð hagkvæmari en verið hafði. Gildandi samningur um sölu landbúnaðarafurða milli ESB og Íslands frá árinu 2007 kveður á um að héðan megi flytja tollfrjálst til landa sambandsins 1.850 tonn af lambakjöti, 380 tonn af skyri og 350 tonn af smjöri. Á móti mega ríki ESB selja hingað án tolla um 100 tonn af nautakjöti og 200 tonn af svína- og alifuglakjöti, auk osta og unninna kjötvara. Lagt var upp í viðræðurnar við framkvæmdastjórn sambandsins á þessu ári með það fyrir augum að rúmlega tvöfalda útflutning lambakjöts héðan, færa tollkvótann í 4.000 tonn. Í viðræðum á nýju ári kemur svo væntanlega í ljós hversu mikið þyrfti á móti að heimila aukningu á innflutningi á landbúnaðarvörum frá ríkjum ESB. Í sumar sagði Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, að bændur treystu sér til að auka framleiðslu sína um 10 til 20 prósent á næstu fimm árum. Slík framleiðsluaukning hafi verið til umræðu hjá bændum vegna horfa á auknum útflutningi. Kæmi til aukningar yrði hins vegar lögð áhersla á að auka sjálfbærni í framleiðslunni, ekki ætti að ganga á landið. Í sama streng tók Ágúst Andrésson, forstöðumaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, sem taldi framfarir í beitarstýringu og á öðrum sviðum þýða að bændur gætu aukið framleiðslu sína umtalsvert. Aukningin yrði þó aldrei nema dropi í hafið í samanburði við heildarinnflutning ESB, sem flytti inn um 300 þúsund tonn af kjöti á ári hverju.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira