Innlent

Fortíðin var bæjarstjóra fjötur um fót

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðrún Pálsdóttir mun senn láta af störfum sem bæjarstjóri í Kópavogi.
Guðrún Pálsdóttir mun senn láta af störfum sem bæjarstjóri í Kópavogi.
Nauðsyn var á umbótum í stjórnsýslu og stjórnun Kópavogsbæjar eftir margra ára valdatíð Sjálfstæðisflokks. Áralöng störf Guðrúnar Pálsdóttur bæjarstjóra hjá Kópavogsbæ gerðu henni erfitt fyrir að fylgja eftir þeim breytingum innan stjórnsýslunnar sem nauðsynlegt var. Varð þá einsýnt að skipta yrið um bæjarstjóra, segir í ályktun sem Samfylkingarfélagið í Kópavogi sendi frá sér í dag.

Í ályktuninni segir að Samfylkingarfélagið harmi þau tíðinda að meirihlutasamstarfi félagshyggjuaflanna í Kópavogi sé lokið. „Það að fulltrúi Næst besta flokksins hafi ákveðið að hætta meirihlutasamstarfinu í kjölfar ákvörðunar sem hann átti sjálfur aðild að kemur á óvart og veldur okkur vonbrigðum," segir í ályktuninni.

Í ályktuninni segir að stjórn félagsins standi einhuga að baki bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar í Kópavogi með Guðríði Arnardóttur í fararbroddi í viðræðum þeirra um myndun nýs meirihluta í bænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×