Hleraður í hálft ár 18. janúar 2012 18:30
Annar höfuðpauranna í stærsta fíkniefnamáli síðasta árs var hleraður af lögreglu í rúmt hálft ár áður en hann var handtekinn í október. Hann neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn, Geir Hlöðver Ericsson, sem er ákærður fyrir innflutning á tæpum tíu kílóum af amfetamíni, rúmlega átta þúsund e-töflum, tvö hundruð grömmum af kókaíni auk steralyfja sem komu með vöruflutningaskipi til Straumsvíkur frá Hollandi í október á síðasta ári. Eftir því sem fréttastofa kemst næst byrjaði lögreglan að hlera bæði síma og heimili Geirs Hlöðvers í mars á síðasta ári allt þar til hann var handtekinn í lok október. Fram hefur komið hjá lögreglu að þrír rannsóknarlögreglumenn hafi unnið að málinu frá því snemma á síðasta ári en þeir munu hafa setið á vöktum við að hlera bæði heimili og síma Geirs. Í umræddum hlerunum kemst lögreglan á snoðir um fyrrnefndan fíkniefnainnflutning, og nafn Sævars Sverrissonar blandast inn í málið. Hann er talinn vera hinn höfuðpaurinn í málinu. Sævar segist hafa verið svikinn því einungis hafi verið rætt um að flytja inn stera, og játaði hann þann hluta málsins í morgun en neitaði öðrum ákæruliðum. Sævar hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því hann var handtekinn þann 10.október en Geir var handtekinn nokkrum dögum síðar. Fjórir aðrir eru ákærðir í málinu en alls er um níu ákæruliði að ræða. Aðalmeðferð fer fram þann 16.febrúar næstkomandi.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira