Sjónvarpsfólk sagt tengjast píramídafyrirtæki sem varað er við á netinu 30. ágúst 2012 21:56 Ásgeir Kolbeinsson gerir það gott í kvikmyndaþættinum Sjáðu. Ekki náðist í hann vegna málsins.
Sjónvarpsfólkið Ásgeir Kolbeinsson og Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir eru sögð tengjast nokkurskonar píramídafyrirtæki sem nefnist WorldVenture. Fréttatíminn greinir frá því í blaðinu sínu sem kemur út á morgun að um ferðaklúbb sé að ræða. Fyrirbærið sé þó áþekkt Herbalife og NuSkin. Eini munurinn er sá að varan eru ferðalög. Rætt er við forkólf fyrirtækisins sem vill ekki koma fram undir nafni en hann segir það ekki samræmast stefnu fyrirtækisins. Hann útskýrir fyrirkomulagið þannig að meðlimir fái afslátt af gistingu. Um er að ræða afslátt frá 15 prósentum upp í 70 prósent. Hægt er að skoða Facebook-síðu klúbbsins en það er maður sem heitir Heiðar Guðnason sem heldur henni úti. Á Facebook-síðunni er tilboðið auglýst svona: „Með því að gerast meðlimur, færðu aðgang að orlofspökkum sem innihalda fjögurra- eða fimmstjörnu áfangastaði en borgar verð er jafnast á við það sem þú myndir greiða fyrir tveggja- eða þriggja stjörnu áfangastaði." Og svo: „Engu er til sparað hvað varðar þægindi og þjónustu hvað varðar upplifun orlofs. Hér má finna það besta er varðar hughrif og slökun. Meðlimir njóta forréttinda hvað varðar aðgang að einstökum áfangastöðum á heimsvísu, allt á verði sem er aðeins brot af því sem aðrir myndu greiða." Tilgangur fyrirtækisins virðist vera að safna félögum fyrst og fremst en ársgjaldið eru hundrað þúsund krónur. Svo eru vörur seldar sem og auðvitað ferðalög. En sérstaklega er tekið fram að flug er ekki ein af vörunum sem verslað er með. Athygli vekur að ef nafni fyrirtækisins er slegið inn í leitarvélina Google.is má finna fjölda ásakana um að fyrirtæki sé lítið annað en svindl. Þá er er raunar einnig hægt að finna Youtube-myndbönd þar sem því er haldið fram að fyrirtækið sé ekki einhverskonar svikamylla. Samkvæmt Fréttatímanum er stefnt að því að fyrirtækið verði orðið starfhæft hér á landi 1. nóvember næstkomandi. Hvorki náðist í Ásgeir Kolbeinsson né Ragnheiði Guðfinnu vegna málsins. Í umfjöllun Fréttatímans kemur fram að Ásgeir og Ragnheiður hafi verið orðuð við sölukynningar um ferðaklúbbinn og eiga að vera efst í píramídanum.Hægt er að lesa Fréttatímann hér.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Fleiri fréttir Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Sjá meira