Mistök að veita ekki upplýsingar án tafar 6. janúar 2012 05:00 Alls var dreift ellefu þúsund tonnum af áburði sem innihélt ríflega tvöfalt það magn kadmíums sem reglugerðir heimila. Kadmíum er eitraður þungmálmur. fréttablaðið/pjetur
Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunar (MAST), viðurkennir að það hafi verið mistök að upplýsa ekki bændur og almenning um að áburður með of háu kadmíum-innihaldi hafi verið seldur og honum dreift. Af því verði lært og verklagsreglum breytt. Málið gefur hins vegar ekki tilefni til afsökunarbeiðni frá hendi stofnunarinnar, að hans mati, hvað þá að honum sem forstjóra beri að segja af sér vegna þess. „Það er allt of langt gengið. Þetta mál er ekki þannig vaxið. Það var engin hætta fyrir hendi í þessu eina tilviki,“ segir Jón, en hann sem forstjóri Matvælastofnunar ber faglega ábyrgð á störfum hennar. MAST fór fram á það 2008 að birta upplýsingar úr áburðareftirliti. Það gekk ekki eftir því sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið gaf út stjórnsýsluúrskurð um að það væri óheimilt. Lögum var seinna breytt til að birting upplýsinganna væri möguleg og á þeim grundvelli hefur MAST birt þessar upplýsingar í ársskýrslu. „Það er tilefni þess að þetta mál kemur upp núna,“ segir Jón. „Það sem við höfum lært núna er að það voru mistök að birta ekki upplýsingarnar strax og þær lágu fyrir.“ Jón segir málið snúa að ábyrgð Skeljungs á sinni vöru, enda hafi þeir fengið upplýsingar um innihald áburðarins strax. „Ef við ætlum að stöðva vöru verðum við að hafa rökstuddan grun um að eitthvað sé að. Í þessu tilviki var ekki um það að ræða. Þá var spurningin hvað ætti að gera á miðju sumri, en niðurstöður voru endanlega staðfestar í júní. Þá var varan komin í dreifingu og byrjað að nota hana. Þá fór fram hættumat og niðurstaðan var að ekki væri nein bráð hætta.“ Spurður hvort ekki hafi verið rétt að hafa samband við þá sem keypt höfðu vöruna um leið og lá fyrir hvers kyns var, og þannig láta bændum það eftir að taka ákvörðun um hvort áburðurinn yrði settur í jörð segir Jón: „Það er kjarni málsins. Við, eða fyrirtækið, áttum að upplýsa þetta strax. Þar liggja mistökin og við munum taka það verklag upp að birta svona upplýsingar um leið og þær liggja fyrir. Við höfum enga ástæðu til að leyna svona upplýsingum.“ Jón segist hins vegar ekki getað svarað því af hverju ákveðið var í sumar að upplýsa engan í níu mánuði um að ósöluhæfur áburður var kominn í dreifingu. „Ég get ekki svarað því af hverju nákvæmlega þetta var ekki upplýst á þeim tíma.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira