Aðeins of mikið af víni í uppskrift Gestgjafans Boði Logason skrifar 6. janúar 2012 14:30 Til að búa til nokkrar villisveppasósuna, eins og hún birtist í útgáfu Gestgjafans, þarftu að minnsta kosti nokkrar flöskur Mynd tengist frétt ekki beint „
Við erum búin að hlæja mikið að þessu og gert mikið grín," segir Guðrún Vaka Helgadóttir, aðstoðarritstjóri Gestgjafans. Nú gengur manna á milli linkur á heimasíðu Gestgjafans um leiðréttingu í blaðinu. Þar er sagt frá því að mistök hafi orðið í uppskrift að villisveppasósu í jólaútgáfu blaðsins. Þar stendur að það eigi að vera 1 flaska af portvíni og 1/2 flaska af brandí í sósunni. Í leiðréttingu á heimasíðunni segir hins vegar að það hafi auðvitað átt að vera 1 dl portvín og 1/2 dl brandí. Guðrún Vaka segist ekki vita hvers vegna þetta gangi á milli manna núna því uppskriftin birtist í jólaútgáfunni árið 2010. Þessi mistök voru leiðrétt strax í janúar á síðasta ári. Hún segir að ekki hafi borist mörg símtöl frá lesendum þar sem ein og hálf flaska af eðalvínum var hellt út í sósu uppskriftina. „Við fengum eitt símtal frá konu sem benti okkur á þetta og spurði okkur hvort þetta gæti virkilega verið," segir hún. Hún segir að stefna ritstjórnarinnar sé að gefa út villulaus blöð og það takist nú yfirleitt alltaf. „Þannig er mál með vexti að þessi uppskrift er frá Úlfari Sveinbjörnssyni og hann handskrifar allar uppskriftir. Sá sem pikkaði uppskriftina inn hefur óvart lesið dl sem fl," segir hún. „Og uppskriftin fór í gegnum allar prófarkir og það tók enginn eftir þessu," segir hún hlæjandi. Hún segir að ritstjórnin hafi grínast með mistökin í fyrra og það hefði verið talað um að starfsmenn blaðsins myndu nota 1 dl af portvíni og 1/2 dl af brandí og svo væri restin bara drukkin.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira