Erlent

Járnbrautarslys kostaði 15 manns lífið á Indlandi

Farþegalest keyrði á litla rútu fulla af farþegum í Uttar Pradesh héraðinu á Indlandi í gær með þeim afleiðingum að 15 manns fórust.

Lestin mun hafa skollið á rútunni á fullri ferð þegar rútunni var ekið yfir járnbrautarteina við Madu járnbrautarstöðina í héraðinu. Um borð í rútunni voru 17 manns og fórust þeir allir nema tveir sem munu vera töluvert slasaðir.

Verið er að rannsaka hvernig á því stóð að rútunni var ekið yfir járnbrautarteinana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×