Erlent

Ísraelar vilja banna of grannar fyrirsætur

Fyrirsætur. Þessar stúlkur þyrftu læknisvottorð til þess að fá að sýna á tískusýningum í Ísrael gangi frumvarp Rachel eftir.
Fyrirsætur. Þessar stúlkur þyrftu læknisvottorð til þess að fá að sýna á tískusýningum í Ísrael gangi frumvarp Rachel eftir.
Ísraelski þingmaðurinn, Rachel Adato, berst nú fyrir því að fá frumvarp samþykkt þar í landi þar sem of grannar fyrirsætur verða beinlínis bannaðar með lögum. Hún segist trúa því að frumvarpið bjargi mannslífum og verndi ungar fyrirsætur sem og börn sem finnist líkamsvöxtur grannra sýningastúlkna eftirsóknarverður.

„Anorexía er ekki falleg," segir Rachel í viðtali við Reuters fréttaveituna. Hún bendir á að anorexía sé stórhættulegur sjúkdómur og það réttlæti frumvarpið, enda hefur tískuiðnaðurinn margsinnis verið gagnrýndur fyrir að notast við horaðar fyrirsætur.

Nýju lögin fela meðal annars í sér að fyrirsætur, bæði karlmenn og konur, þurfa að fá sérstakt vottorð frá lækni. Hann mun svo skera úr um hvort líkamsvöxtur fyrirsæta sé eðlilegur eða undir eðlilegum mörkum.

Þá kemur einnig fram sú krafa í frumvarpinu að ekki megi sýna myndir af of grönnum fyrirsætum, né breyta þeim með aðstoð tölvutækninnar, svo fyrirsætan líti út fyrir að vera grennri en hún raunverulega er.

Ísrael er ekki eina landið sem berst fyrir slíkum lögum. Þannig hafa ítalskir og Indverskir þingmenn talað fyrir samskonar lögum auk þess sem stakir fatahönnuðir neita að notast við of grannar fyrirsætur. Þekktastir þeirra eru líklega Victoria Beckham og Giorgio Armani.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×