Telur samræmda sjúkraskrá nauðsynlega 9. janúar 2012 09:30 Velferðarráðherra segir ekki ljóst hvenær nýtt skráningarkerfi verður tekið í notkun.
Velferðarráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað við að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. Síðastliðið haust var kynnt skýrsla sem velferðarráðherra lét vinna um skipulag heilbrigðiskerfisins hér á landi. Það var Boston Consulting Group sem vann skýrsluna. Ein af niðurstöðum skýrslunnar er að verulega skorti á rafræn skráningarkerfi hér á landi og nákvæmar tölulegar upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu. Mikilvægt sé að tekin verði í notkun samræmd rafræn sjúkraskrá fyrir allt landið. Slíkt er ekki til staðar hér á landi eins og staðan er núna. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að unnið sé að því að taka slíka skrá í notkun hér á landi. „Það er alveg klárt að þetta er eitt af forgangsverkefnunum. Það skiptir gríðarlega miklu máli að við séum með samræmda sjúkraskrá þar sem hægt er að fylgjast heildstætt með hverjum og einum sjúklingi og lesa og fylgja eftir þeim aðgerðum sem að gerðar eru á viðkomandi eða þeirri þjónustu sem að viðkomandi fær. Þetta skiptir máli upp á lyfin, þetta skiptir máli upp á að ekki sé verið að endurtaka hluti og gera þá aftur og aftur. Þetta er stórt verkefni sem að við klárum ekki á einhverjum vikum,“ segir Guðbjartur. Fjögur hundruð íslenskar konur eru með PIP-sílikonpúða en gögn um þær eru aðeins hjá lýtalækninum sem framkvæmdi aðgerðirnar. Guðbjartur telur að ef samræmd sjúkraskrá væri til staðar hefði hún nýst í málinu. - lvp
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira