Fréttaskýring: Ekki dæmt um skaðabætur 9. janúar 2012 11:00 Hart var deilt á Alþingi í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008. Mögulegt er að EFTA-dómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu að Íslendingar hafi mismunað á grundvelli þjóðernis varðandi innstæðutryggingar. Hann dæmir þó ekki um skaðabætur.fréttablaðið/anton
Hverjar eru mögulegar niðurstöður EFTA-dómstólsins í máli gegn Íslendingum vegna Icesave? ESA, eftirlitsstofnun EES, stefndi Íslendingum fyrir dómstól EFTA í desember. Tilefnið var meint brot þeirra á tilskipun um innstæðutryggingar. Dómstólsins er að meta hvort reglur innstæðutryggingakerfis Evrópusambandsins hafi verið brotnar í uppgjöri Icesave-skuldanna. Samkvæmt tilskipuninni ber innstæðutryggingasjóði hvers lands að tryggja greiðslu lágmarkstryggingar til hvers sparifjáreiganda, að upphæð 20 þúsund evrur. Við hrun Landsbankans ákváðu íslensk stjórnvöld að ábyrgjast allar innlendar innstæður að fullu. Þetta var gert með neyðarlögunum sem samþykkt voru 6. október 2008, í upphafi bankahrunsins. Geir H. Haarde forsætisráðherra var fyrsti flutningsmaður þeirra. Í ræðu sinni sagði hann lögin nauðsynleg vegna bankakreppunnar. „Við þessar erfiðu aðstæður hafa stjórnvöld víða um heim neyðst til að grípa til ráðstafana er miða að því að tryggja virkni fjármálakerfisins og efla traust almennings á því,“ sagði Geir í ræðu sinni. Þetta gilti hins vegar aðeins um innlendar innstæður. Breskir og hollenskir eigendur sparifjár á Icesave-reikningum voru ekki inni í þessu íslenska innstæðukerfi, þó þeir hefðu átt reikninga í íslenskum banka: Landsbankanum. Bretar og Hollendingar gripu til þess ráðs að tryggja innstæðurnar og fóru fram yfir það sem lágmarkstryggingin sagði til um. Bretar tryggðu 50 þúsund pund og Hollendingar 100 þúsund evrur. Deilur þjóðanna hafa síðan staðið um hvernig Íslendingar ætli sér að standa við lágmarkstrygginguna á erlendum reikningum einnig. EFTA-dómstóllinn gæti, eins og sagt er frá hér til hliðar, komist að því að ráðstafanir Íslendinga væru brot á banni um mismunun vegna þjóðernis. Sú mismunun ætti þá væntanlega við um allar innstæður líkt og var hér á landi, ekki bara lágmarksinnstæðu. Um töluverðar upphæðir er að ræða þar sem lágmarksinnstæðurnar nema 670 milljörðum íslenskra króna en heildarinnstæður tæpum 1.200 milljörðum. Eftir stendur að allt útlit er fyrir að eignir þrotabús Landsbankans dugi fyrir forgangskröfum og vel það og þar með lágmarkstryggingunni. Eftir standa þó deilur um vexti. EFTA-dómstóllinn kveður hins vegar aðeins upp úr um hvort brot hafi átt sér stað, ekki hverjar afleiðingar þess eru og hvað þá hvort það hafi skaðabótaskyldu í för með sér. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira