Búið að koma fólki niður af Hellisheiðinni 9. janúar 2012 23:26 Mynd/Vilhelm
Björgunarsveitir úr Árnssýslu og Reykjavík og Vegagerðarmenn hafa í kvöld aðstoðað fólk á 20 til 30 bílum í vondu veðri og afleitri færð á Hellisheiði og í Þrengslum. Um 20 björgunarsveitarmenn hafa aðstoðað ökumennina. Í tilkynningu frá lögreglu segir að enn séu þrír flutningabílar stopp á leiðinni og munu vegheflar sem sendir voru úr Reykjavík og frá Selfossi reyna að koma þeim af stað aftur og til byggða. „Búið er að koma fólki úr fólksbílum niður af heiðinni, sumum í fjöldahjálparstöð RKÍ í Hveragerði en öðrum hefur tekist að koma niður í bílum sínum niður á láglendi þaðan sem þeir hafa bjargað sér sjálfir í húsaskjól eftir því sem við á. Í framhaldi af þessum aðgerðum munu mokstursmenn Vegagerðarinnar meta aðstæður, verður og veðurspá og verður þá ákveðið hvort unnt verður að opna veginn aftur í kvöld," segir ennfremur í tilkynningunni. Fólki er bent á að fylgjast með upplýsingum á vef vegagerðarinnar eða í upplýsingasíma hennar, 1777. Einnig er nauðsynlegt að fylgjast með veðurspá en veðurfræðingur á vakt hjá Veðurstofunni gerir, í samtali við lögreglu nú fyrir stundu, ráð fyrir vestan storméljum á Hellisheiði og í Þrengslum í nótt og á morgun.
Mest lesið Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Innlent Fleiri fréttir „Loforð er loforð og við vonum að þær standi við það“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Sjá meira