Vinnulag Gunnlaugs ekki til fyrirmyndar 17. júlí 2012 06:30 Vinnueftirlitið er ekki sátt við þau vinnubrögð sem viðhöfð eru í þáttum Gunnlaugs Helgasonar á RÚV. fréttablaðið/pjetur
Vinnueftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð Gunnlaugs Helgasonar í þáttunum Gulli byggir. Gunnlaugur segist reyna að varpa réttu ljósi á venjuleg vinnubrögð Íslendinga og þátturinn sé íslenskur raunveruleikaþáttur. Vinnueftirlitið hefur gert alvarlegar athugasemdir við vinnulag í sjónvarpsþáttunum Gulli byggir sem sýndir eru á RÚV. Vinnueftirlitinu þykja aðferðir þáttastjórnandans oft og tíðum stórhættulegar og bendir á að einföldum vinnureglum á byggingasvæði sé ekki fullnægt. Þættinum stjórnar Gunnlaugur Helgason, húsasmíðameistari og leikari. Hann segir athugasemdir Vinnueftirlitsins eiga rétt á sér enda reyni hann í þáttunum að endurspegla vinnubrögð íslenskra iðnaðarmanna sem hann segir að séu stundum glæfraleg. „Þessi þáttur er pínulítill íslenskur raunveruleikaþáttur og fjallar um hlutina eins og þeir eru,“ segir Gunnlaugur. „Það er svo gaman að þessu því það hefur aldrei verið neitt í sjónvarpinu sem fjallar um byggingar eða lagfæringar á húsum. Svo loksins þegar það gerist þá dúkkar þetta allt upp.“ Gulli tekur þessari gagnrýni fagnandi og bendir á að margt megi betur fara í vinnubrögðum iðnaðarmanna á Íslandi. „Þetta er þáttur um hlutina eins og þeir eru en ekki um hlutina eins og þeir ættu að vera. Ég er búinn að tala um það fjórum eða fimm sinnum að fólk eigi að nota öryggisbúnað.“ Í athugasemd Vinnueftirlitsins er það meðal annars gagnrýnt að þáttastjórnandinn hafi unnið á þaki húss án þess að hafa nokkra fallvörn. Í einu tilviki lá við slysi þar sem hann var nærri dottinn. Þá er bent á glæfraleg vinnubrögð þegar mænisás var hífður þannig að fólk stóð undir. Það sama má segja um þegar burðarbita var lyft þannig að mikið ójafnvægi var á honum. Starfsmenn hafi svo nýtt handafl langt yfir höfuðhæð sinni svo veruleg hrun- og fallhætta skapaðist. Fleira er tínt til, svo sem eins og röng notkun stiga, lítil notkun á öryggishjálmum og annað slíkt. Gulli bendir á að það sé hlutverk Vinnueftirlitsins að gera athugasemdir við þessa hluti en hann segist ekki alveg sammála öllu því sem fram kemur í athugasemdinni. „Þetta er bara hið besta mál því það er aldrei of varlega farið. Þetta er allt saman gott og gilt,“ segir Gulli. „Ég er kannski ekki endilega sammála öllu því sem stendur í athugasemdinni en það er örugglega hægt að skoða þetta og setja út á vinnubrögðin.“ „Það er kannski erfitt að orða þetta svona, að það sé meiri glannaskapur en gengur og gerist,“ segir Gulli. „Hann er raunar rosalegur oft. Ég hef orðið vitni að meiri glannaskap en þessu.“birgirh@frettabladid.is
Mest lesið „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fleiri fréttir Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Sjá meira