Hættulegustu gatnamótin í borginni 14. febrúar 2012 17:22 Gatnamótu Miklubrautar og Grensásvegar.
Á árunum 2008-2011 urðu nítján umferðarslys á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar og átján á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Að sögn lögreglu skera þessir staðir sig eilítið úr en tvö önnur gatnamót á Miklubraut koma líka við sögu ef skoðaðar eru tölur um umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu. „Á sama tímabili urðu fjórtán umferðarslys á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og sömuleiðis á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar. Í 5-6 sæti á listanum yfir hættulegustu gatnamótin á höfuðborgarsvæðinu eru gatnamót Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar og gatnamót Stekkjarbakka, Skógarsels og Breiðholtsbrautar en á þeim báðum urðu tólf umferðarslys á árunum 2008-2011," segir í tilkynningu frá lögreglu. „Þegar horft er á hættulegustu vegarkaflana á höfuðborgarsvæðinu koma bæði Garðabær og Kópavogur við sögu. Á Reykjanesbraut, á milli Vífilsstaðavegar og Urriðaholtsbrautar, urðu ellefu umferðarslys á fyrrnefndu tímabili og tíu á Hafnarfjarðarvegi, milli aðreinar að Digranesvegi að frárein frá Fífuhvammsvegi." Lögregla segir ofangreinda staði væntanlega koma fæstum á óvart, „enda mjög mikil umferð um þá alla og þúsundir ökutækja sem þar fara um á hverjum sólarhring. Þetta eru jafnframt svokallaðir svartblettir en lögreglan fylgist sérstaklega með umferð á fjölförnum gatnamótum og stofnbrautum á álagstímum enda er sýnileg löggæsla eitt af markmiðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá er í samstarfi vegagerðar, sveitarfélaga og lögreglu leitast við að greina orsök óhappa á þessum stöðum og leita lausna."
Mest lesið Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Erlent Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Innlent Fleiri fréttir Leitar eftir stuðningi almennings vegna einstaks dómsmáls Opna nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum í Reykjanesbæ Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land „Planið“ sé byrjað að virka Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ „Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl“ Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Fjöldi tilvika af glæfralegum framúrakstri áhyggjuefni „Dýravernd er ekki öfgaskoðun“ Hvalirnir skornir og lögreglan með áhyggjur af hraðakstri Segir milljarðahönnun skóla í Vogahverfi óraunhæfa Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Rabarbari hafinn til vegs og virðingar á Blönduósi Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Sjá meira
Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Innlent
Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Innlent