Lífið

Fimm flottustu dívurnar

Ciara var glæsileg á rauða dreglinum. Ljósu lokkarnir fara henni vel.
Ciara var glæsileg á rauða dreglinum. Ljósu lokkarnir fara henni vel.
Hér má sjá fimm stórglæsilegar söngkonur sem þóttu bera af á 2012 VH1 Divas hátíðinni sem haldin var í vikunni.

Þetta eru þær Ciara, Demi Lovato, Kat Graham, Jenna Dewan-Tatum og Kelly Osbourne. Án efa allar glæsilegar á sinn hátt.

Óhætt er þó að segja að Kelly Osbourne hafi aðeins stolið senunni með sitt fjólubláa hár.

X factor dómarinn Demi Lovato hefur vakið mikla athygli fyrir fallegu og þykku augabrúnirnar sínar og fallega augnförðun en hún er dugleg að breyta um stíl og leika sér að tískunni.

Kat Graham var með gullfallega smokey förðun.

Jenna Dewan-Tatum bauð upp á dásamlegt prinsessuútlit.

Kelly Osbourne vakti athygli fyrir sitt fjólubláa hár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.