Förum ekki í manngreinarálit 20. september 2012 04:00 Baldur er lögfræðingur og sinnir lögmannsstörfum á Lex.
Páll Winkel fangelsismálastjóri segir alfarið unnið eftir lögum og reglugerðum þegar teknar eru ákvarðanir um það hvort fangar megi ljúka afplánun utan fangelsis, ýmist á áfangaheimilinu Vernd eða undir rafrænu eftirliti. Þar sé aldrei farið í manngreinarálit. Páll vill ekki tjá sig sérstaklega um mál Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, sem nú afplánar tveggja ára fangelsisdóm sinn á Vernd og sinnir samhliða því störfum á lögmannsstofunni Lex. Baldur sat inni á Kvíabryggju í hálft ár. Hann segir hins vegar að almennt sé það svo að lögum samkvæmt hafi fangar tækifæri til að afplána dóma sína utan fangelsis eftir að þeir hafi setið inni þriðjung afplánunartímans – sem er sá tími sem gera má ráð fyrir að fanginn afpláni yfir höfuð. Það er gjarnan ekki nema helmingur dómsins því að eftir helming á fanginn í flestum tilvikum kost á reynslulausn. Hún er veitt í um sextíu prósentum tilfella. Enginn fær að afplána á Vernd nema hann sé annað hvort í fullu námi eða vinnu. Starfsfólk Fangelsismálastofnunar tekur svo út vinnustaðina og hefur eftirlit með því að fangarnir mæti til vinnu. Að lokum gefst föngum færi á að afplána undir rafrænu eftirliti með hjálp ökklabands, í tvo og hálfan dag fyrir hvern mánuð dómsins. Í tilviki Baldurs eru það tveir mánuðir. Því næst tekur við tveggja ára reynslulausn. Páll segir að öllum þessum úrræðum sé ætlað að búa fangana betur undir það að snúa út í lífið. „Að baki þessu liggur sú hugsun að með þessu sé verið að betra fangann," segir Páll.- sh
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira